Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Blaðsíða 39
Ábuz-ðarverksmiðjan í Fél. ísl. iðnrekenda og taldi hún
sig þar með falla undir hin almennu ákvæði kjarasamn-
ings Iðju og Fél. ísl. iðnrekenda, en óskaði sérsamninga
við Iðju um þau atriði, sem vörðuðu verksmiðjuna sér-
staklega og ekki væri samið um í kjarasamningi Iðju og
iðnrekenda. Iðja neitaði því hins vegar, að hún væri samn-
ingsaðili um kaup og kjör ófaglærðra verkamanna Áburð-
arverksmiðjunnar, þar sem þeir væru Dagsbrúnarmenn
og um það hefði verið samið milli Iðju og Dagsbrúnar, að
Dagsbrún færi með samninga vegna þeirra. Þetta hefði
bæði Áburðarverksmiðjan og Fél. ísl. iðnrekenda vitað,
er framlengdur var kjai'asamningui'inn 31. maí, og geti
Áburðarverksmiðjan þegar af þeim ástæðum ekki fallið
undir ákvæði nefnds samnings. Á þetta vildi Fél. ísl. iðn-
rekenda og Áburðarverksmiðjan ekki fallast og gerðu
kröfu til þess hvors tveggja, að áðurnefndur samningur
Iðju og Dagsbrúnar um fyrirsvar vegna verkamanna í
Áburðarverksmiðjunni yrði talinn andstæður kjarasamn-
ingi Iðju og Félags ísl. iðnrekenda og að dæmt yrði, að
Áburðarverksmiðjan félli sem félagi í Féh.ísl. iðnrekenda
undir ákvæði kjarasamnings þess félags og Iðju.
Það kom fram í málinu, að samkvæmt samþykktum
Iðju var tilgangur félagsins, „að efla hag og menningu
verksmiðjufólks og gangast fyrir félagssamtökum verk-
smiðjufólks í atvinnugreinum skildum verksmiðjurekstri".
Enn var það upplýst, að í Dagsbrún gátu verið verka-
menn, ,,sem vinna við hvers konar framleiðslu" og „ekki
taka laun samkvæmt samningum annarra viðurkenndra
verkalýðsfélaga“. Þá lá það fyrir, að strafsmenn Áburðar-
verksmiðjunnar voru allflestir ófaglærðir verkamenn og
félagsmenn í Dagsbrún og tóku laun samkvæmt kjara-
samningi milli þess félags og verksmiðjunnar, en enginn
starfsmannanna var félagi í Iðju. Að þessu athuguðu þóttu
samingar Iðju og Dagsbrúnar ekki þurfa að vera í ósam-
ræmi við stefnumið og starfsháttu nefndra félaga; og þar
sem Áburðarverksmiðjan hafði ekki gerzt félagi í Félagi
ísl. iðnrekenda, er nefndur samningur var gerður, þótti
1G5