Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Síða 34
Að úthlutun styrkjanna lokinni var rætt um útgáfu
tímaritsins Nordisk Administrativt Tidsskrift, svo sem
venja er á hverjum stjórnarfundi.
Að lokum kom fram fyrirspurn um þátttöku Noregs í
Institut international des sciences administratines, og var
henni svarað á þá leið, að Noregi mundi ekki hafa þótt
ástæða til þátttöku. Svipaða afstöðu munu hin Norður-
löndin nema Danmörk hafa tekið.
Embættismenn þess lands, sem fundir eru haldnir í,
reyna að gera félögum sínum frá hinum löndunum dvölina
í landi þeirra sem ánægjulegasta. Norsku embættismenn-
irnir voru ekki eftirbátar annarra í þetta skipti fremur
en endranær. Þeir höfðu hlutazt til um það, að norsku
járnbrautirnar buðu þeim, sem stjórnarfundinn sátu, og
konum þeirra í ferðalag til Rjukan á Þelamörk: Lagt
var af stað að áliðnum degi 26. ágúst og var komið til
Rjukan nokkru fyrir óttu. Meðan þar var dvalið var hóp-
urinn gestur A/S Norsk Hydro, sem á orkuver í Rjukan-
dalnum, og er eitt stórkostlegasta iðnfyrirtæki Noregs.
Honum var gefinn kostur á að sjá nokkuð af orkuverun-
um og fór það, sem þar var að sjá, að miklu leyti fyrir
ofan garð og neðan hjá flestum, sem vonlegt var, en fram-
takssemi og stórhugur Norðmanna varð mönnum minnis-
stæður.
Dýpst áhrif á okkur Islendingana og e. t. v. fleiri gest-
anna var hið mikilfenglega, hlýlega og fallega landslag á
Þelamörk. Leið gestanna lá úr Rjukandalnum upp á
reginfjöll til hótelsins Rauland. Gróðurinn þar minnti á
ríkan íslenzkan heiðagróður og töfrar norðlægra fjalla-
heima léku um menn.
Sögulegir staðir voru á leið þessari. Á fjöllunum höfð-
ust við að vetrarlagi nokkrir ungir menn, er sátu um
færi til að gera Þjóðverjum sem mestar skráveifur á styrj-
aldarárunum síðustu, og er ekki nema rúmur áratugur
síðan að útlögum þessum tókst tvisvar með áræðni og
snarræði að hrifsa úr höndum óvina sinna og eyðileggja
„hið þunga vatn“, sem framleitt hafði verið í verksmiðj-
160