Tímarit lögfræðinga - 01.10.1954, Page 61
Á víð og dreif.
Ritstjóraspjall.
Þetta hefti er síðbúnara ön ætlazt var til og æskilegt
væri.
Til þess eru ýmsar ástæður. Tvö síðari hefti árgangsins
1953 komu ekki út, fyrr en komið var fram á vor 1954,
þótt fyrrv. ritstjóri verði ekki sakaður um það. En af
því leiddi, að naumur tími hefir orðið til þess að koma
árganginum 1954 út á réttum tíma. Þá hefir og enn sem
fyrr reynzt erfitt að fá menn til að skrifa í ritið. Nokkrir
hafa þó brugðið vel við, eins og ritið ber með sér.
Ég hefi fullan hug á því að koma ritinu út nokkurn
veginn á réttum tíma. En eins og nú er komið virðist
þeirri áætlun ekki verða náð nema því aðeins, að látið verði
sitja við 3 hefti árið 1954. Vona ég, að menn taki ekki
hart á og meti eftir ástæðum. Eg hefi reynt að hafa þau
hefti, sem ég hefi annazt ritstjórn á, nokkru fjölbreyttari
en áður. Væri gott að heyra raddir kaupenda um, hvernig
þeim líkar sú tilbreytni og þá jafnframt óskir, er þeir
kynnu að hafa um endurbætur. Mér er mjög hugleikið,
að kaupendur séu í sem nánustu og beinustu sambandi við
ritið og einkum þó, að þeir sendi efni til birtingar. Eink-
um væri æskilegt að fá fræðilegar ritgerðir, en stuttai
hugleiðingar um dagsins málefni, fréttir og frásagnir eru
einnig þakksamlega þegnar.
Löggjöf 19 5 U.
Það er nú sjálfsagt óþarfi að telja upp lög ársins 1954
og verður heldur ekki gert.
En þótt allir lögfræðingar fái stjórnartíðindin, held ég,
að nokkuð bresti á, að þeir allir kynni sér þau nánar en
sérstakt tilefni verður til hjá hverjum einum.
187