Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.04.1956, Blaðsíða 5

Tímarit lögfræðinga - 01.04.1956, Blaðsíða 5
kemur því aðeins til, að ávirðingar lögmannsins séu gerðar vísvitandi, eða þarfleysi eða þýðingarleysi dómsathafnar eða ráðstöfunar hafi verið sýnilegt. Engu máli skiptir hins vegar þótt umbjóðandi lögmannsins hafi krafizt þess- arar framkomu eða aðgerða af honum og lögmaðurinn hafi aðeins hlýtt fyrirmælum umbjóðanda síns, slíkt leysir lög- manninn ekki undan ábyrgð. Til þess að fébótaábyrgð verði lögð á lögmanninn verður að hafa komið fram krafa um það. Samkvæmt þessum ákvæðum getur komið til, að slíkri bótakröfu verði beint að aðiljanum sjálfum, að þeim aðiljanum og lögmanni hans in solidum og lögmanninum einum. Svo virðist, sem lögmenn séu ekki vendilega saklausir af þeim ávirðingum, sem hér er um rætt a. m. k. að því er varðar drátt mála og þau tilvik er um ræðir í 4. tl. 177. gr. en sjaldgæft mun vera, að krafizt hafi verið bóta úr þeirra hendi af þessum sökum. Benda má hér á Hrd. XXV bls. 31 og Hrd. XXV bls. 35. Þar var áfrýjanda máls gert að greiða málskostnað, en tekið fram, að þar sem ekki hafi verið krafizt málskostnaðar úr hendi lögmanns áfrýjanda verði áfrýjandi sjálfur dæmdur til að greiða málskostnað. Ef blaðað er í dómasöfnum Hæstaréttar sést, að lög- menn hafa fengið vítur fyrir tilefnislausa áfrýjun t. d. Hrd. XXII bls. 263, sekt fyrir tilefnislausa kæru, t. d.. Hrd. XXIII bls. 584 og vítur fyrir tilefnislausar kærur t. d. Hrd XXIII bls. 518, XXIII bls. 639, XXV. bls. 562. Ljót er, að í mörgum þessara tilvika hefðu andstæðingar lögmanna getað krafizt málskostnaðar úr þeirra hendi og fengið hann dæmdan. Hinsvegar er á það að líta, sér- staklega að því er varðar tilefnislausar dómsathafnir, svo sem málskot til æðra dóms, að lögmennirnir munu þar í flestum tilvikum hafa farið eftir eindregnum kröfum og fyrirskipunum umbjóðenda sinna, málsaðiljanna. Það er að vísu veruleg afsökun, en ekki verður það nógsam- lega brýnt fyrir lögmönnum að gæta sín fyllilega í skipt- um sínum við umbjóðendur sína. Góður lögmaður verður 67
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.