Tímarit lögfræðinga - 01.04.1956, Side 39
Viðurkennt er að 3., 6., 9. og 12. maður á lista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík séu ekki í Alþýðuflokknum og eigi
hefur því verið andmælt, að þeir séu Framsóknarmenn né
heldur að kjósendur úr Framsóknarflokknum séu á meðal
stuðningsmanna listans. Þá hefur því ekki verið neitað —
og verður það því að teljast viðurkennt — að í 3. sæti list-
ans hafi verið skipað eftir úrslitum í prófkosningu á meðal
Framsóknarmanna í Reykjavík Þegar litið er til þessa í
sambandi við það, að Framsóknarflokkurinn hefur ekki
lista í framboði í Reykjavík svo og til hins algera kosn-
ingabandalags þessara flokka annars staðar á landinu, tel
ég rétt að líta svo á, að hér sé um framboðslista beggja
framangreindra flokka að ræða og getur það að mínum
dómi engu breytt, þótt hann sé borinn fram af Alþýðu-
flokknum.
Af því, sem nú hefur verið greint tel ég leiða, að fram-
boðslisti þessi geti ekki talist til neins ákveðins flokks
(þ. e. Alþýðuflokksins), heldur verði að öllu óbreyttu með
hann að fara sem lista utanflokka. Af því leiðir, að fram-
bjóðendur þessa lista mega ekki vera á landslista Al-
þýðuflokksins sbr. 1. mgr. 29. gr. laga um kosningar til
Alþingis, og um hann mundu gilda ákvæði 2. mgr. 125. gr.
sömu laga. Hinsvegar tel ég, að samkv. 38. gr. nefndra
laga, beri að veita Alþýðuflokknum hæfilegan frest til að
kippa þessu í lag, með því að fá nöfn þeirra manna, er
skipa framangreind sæti numin burt af listanum á lögmæt-
an hátt, þ. e. með því, að hlutaðeigandi frambjóðendur
falli frá framboðum sínum á lista Alþýðuflokksins í Reykja-
vík.
Samsvarandi því, sem nú hefur verið rakið, tel ég að eigi
við um framboðslista Framsóknarflokksins í Árnessýslu,
þar sem viðurkennt er, að 2. maður á þeim lista sé Alþýðu-
flokksmaður. Liggja að mestu til þessa sömu rök, sem um
lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, að því undanskildu, að
ekki er leitt í ljós, að 2. maður á lista þessum hafi verið
tilnefndur af Alþýðuflokksmönnum í Árnessýslu. Tel ég
101