Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Page 40
félaga fellur undir starfssvið umboðsmanns, er eðlilegt að takmarka
það við málefni, sem kæra má til stjórnvalda ríkisins. Þá er ekki hægt
að leggja fyrir umboðsmann mál, sem sveitarstjórn hefur æðsta vald í.
Utan við starfssvið umboðsmanns falla löggjafarsamkomur og ná-
tengd starfsemi, svo sem fjárveitinganefnd, einnig þingmenn í störf-
um sínum sem slíkir. Öðru máli gegnir um nefndarstörf, sem þing-
menn sinna utan þings.
Dómstólar falla einnig utan við starfssvið hans, og á það jafnt við
um dómstörf við réttarhöld sem önnur dómstörf svo sem þinglýsing-
ar, notarialgerðir og ýmsar athafnir skiptaréttar, þótt þau störf beri
keim stjórnsýslu.
Umboðsmaður fjallar ekki um einkaréttarlegan ágreining eða störf
lögmanna, fasteignasala, lækna, samvinnufélaga o.s.frv., enda þótt
sumir þessara aðila séu svokallaðir opinberir sýslunarmenn. Hins vegar
má nefna, að t.d. í Danmörku starfar sérstakur neytendaumboðsmað-
ur (forbrugerombudsmand), sem grípur inn í fjöhnörg svið einka-
réttarlegs eðlis.
Þjóðkirkja og prestar falla ekki undir starfssvið umboðsmanns að
því er varðar kenningar og boðskap beint eða óbeint.
Það frestar ekki framkvæmd ákvörðunar stjórnvalds, t.d. gjaldtöku,
þótt mál hafi verið kært til umboðsmanns, enda er starfsemi hans ein-
ungis eftirfarandi eftirlit og athugasemdir við þegar framkvæmdar
stj órnvaldsathaf nir.
Leó E. Löve lauk lagaprófi 1973, var eftir það
fulltrúi á lögmannsskrifstofu um hríð, en réðst
til bæjarfógetans í Kópavogi sama haust og
hefur starfað þar síðan. Hann varð aðalfull-
trúi 1974 og var settur bæjarfógeti um nokk-
urt skeið haustið 1979. Leó var í ársleyfi í
Kaupmannahöfn 1977—78 og var þá á skrif-
stofu umboðsmanns danska þjóðþingsins, en
einnig á skrifstofu borgardóms Kaupmanna-
hafnar og hjá lögreglu. Hér er birt erindi,
sem Leó flutti á málþingi Lögfræðingafé-
lags íslands 1979. í erindinu er sagt frá
því, hver eru verkefni umboðsmanns danska
þjóðþingsins, og hvernig störfum hans er hátt-
að. Þá er fjallað um, hvaða atriði þurfi að hafa
[ huga, áður en ákvörðun er um það tekin,
hvort stofna skuli embætti umboðsmanns Alþingis.
162