Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Page 46
til svars, en auk þess er kæranda ævinlega sent bréf með stuttum skýr-
ingum á gangi mála, ef 3 mánuðir líða án þess að sérstakt tilefni sé
til að skrifa honum.
Kæranda er gefinn kostur á að hitta umboðsmann að máli, ásamt
einum hinna þriggja yfirmanna hópanna og fulltrúa þeim, sem með
mál hans fer. Gefst kæranda þar með tækifæri til að tryggja, að öll
sjónarmið hans komist til vitundar þess, sem um málið fjallar, og fær
auk þess leiðbeiningar um, hvaða gagna hann skuli leita.9 Þá er al-
gengt, að kæranda séu sendar greinargerðir stjórnvalda og önnur
gögn, svo að hann geti tjáð sig um þau (kontradiktion).
M.a. af ofanrituðu er ljóst, að mikil áhersla er lögð á að upplýsa
kæranda — og jafnvel leiðbeina — , og sýna honum að fyrir hann sé
unnið af alúð, þótt útkoman verði að sjálfsögðu ekki alltaf sú, sem
hann helst kysi.
Þegar allra gagna, sem þörf hefur verið talin fyrir, hefur verið
aflað, útbýr fulltrúinn nákvæma málavaxtalýsingu og gerir tillögu um
afgreiðslu. Núverandi umboðsmaður krefst jafn nákvæmrar málavaxta-
lýsingar í öllum málum, og skiptir þar engu, hver niðurstaðan verður,
hvort hún verður gagnrýni eða staðfesting á gerðum stjórnvalda.
Tillögu sína leggur fulltrúinn fyrst fyrir þann yfirmann, sem yfir
hóp hans er settur. Yfirmaðurinn gerir sínar athugasemdir við máls-
meðferð fulltrúans, ef einhverjar eru, og ákveður, hvernig málið skuli
lagt fyrir umboðsmanninn. Umboðsmaður tekur endanlega ákvörðun
um afgreiðslu málsins, og að sjálfsögðu um niðurstöðu þess.
Oft er málavaxtalýsing umboðsmanns (redegorelse — notat), án
niðurstöðu hans10 send til þess stjórnvalds, sem kært hefur verið yfir.
Er tilgangur þessarar sendingar tvíþættur. I fyrsta lagi er greinargerð-
in send til skýringar spurningu, sem samtímis er lögð fyrir stjórnvald-
ið. Greinargerðin er þá hugsuð sem skýring á spurningunni. 1 öðru
lagi er með sendingu greinargerðarinnar vakin athygli stjórnvalds-
ins á þeim atriðum, sem umboðsmaður telur mikilsvérðust, endanlég
afgreiðsla málsins sé á næstu grösum, og stefni í átt gagnrýni að
öllu óbreyttu. Er stjórnvaldinu með þessu óbeinlínis bent á að endur-
skoða fyrri meðhöndlun sína á rnálinu, vilji það komast hjá gagnrýni.
Eins getur stjórnvaldið komið að enn frekari rökum, vilji það halda
fast við fyrri ákvörðun.
9 Að loknum slíkum fundum semur fulltrúinn yfirlit yfir það sem fram hefur farið.
10 Þ.e. málavaxtalýsingin sem samstarfsmenn hans hafa unnið eftir hans fyrirsögn,
að flestu leyti eins og sú endanlega, nema hvað afstöðu vantar.
168