Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Page 55
DÓMSTÓLARNIR 1979
Dómsmálaskýrslur Hagstofunnar komu síSast út 1978, og eru þær um
árin 1972—74. — í júlí s.l. var haft samband við allar dómaraskrifstofur lands-
ins og spurst fyrir um, hvort teknar hefðu verið saman skrár um fjölda dóms-
mála 1979. Beðið var um, að þessar og aðrar tiltækar og áhugaverðar upp-
lýsingar yrðu sendar tímaritinu til birtingar. Hér á eftir verður það birt, sem
barst. í starfsliði ritstjórnar fyrirfinnast ekki tölfræðingur eða vanur skýrslu-
gerðarmaður um þessar mundir, svo að úrvinnsla gagna og framsetning er
án efa ekki í sem bestu lagi. Engin tök voru á að ganga eftir gögnum úr
öllum lögsagnarumdæmum, og ekki þótti heldur unnt að samræma skýrsl-
urnar meira en raun ber vitni. Skylt er þó að geta þess, að endanlegur frá-
gangur þeirra er á ábyrgð ritstjórnar, en ekki þeirra embættismanna, sem
skýrslunar sendu. Skylt er og að þakka þeim, sem það gerðu. Minnt er á, að
á Alþingi 1979—80 lagði dómsmálaráðherra fram skýrslu um meðferð dóms-
mála, sjá þingskjal nr. 334, Alþingistíðindi, skjalahluti, bls. 1409, og umræðu-
hluti dálkur 4148.
HÆSTIRÉTTUR
Áfrýjanir 1978 — 20. ágúst 1980.
1978 1979 1980 til 20/8
Einkamál 136 125 73
Opinber mál 16 37 30
Kærumál einka 16 22 13
Kærumál opinber . . . 19 15 12
187 199 128
Gagnsakir . . 37 22 8
224 221 136
Þess má geta, að skv. dómsmálaskýrslum Hagstofunnar voru málskot til
Hæstaréttar 1972—4 sem hér segir: 1972 171, 1973 186 og 1974 223.
Mál í gangi 20. ágúst 1980.
Einkamál
Tilbúin til flutnings 117
Koma fyrir í október 91
Koma fyrir í nóvember 8
216
Opinber mál
Frá 1978 1
Frá 1979 ..................... 11
Frá 1980 30
42
Til samanburðar má geta þess, að í september 1976 voru 210 mál í gangi
fyrir Hæstarétti og 74 þeirra tilbúin til flutnings.
177