Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Side 67
tillögur um fyrirkomulag og reglur, er þetta varða, og ef samningsaðili
óskar þess fjalla og veita umsagnir um menntunarmál einstakra starfs-
manna.
3.3. Um ferða- og dvalarkostnað starfsmanna vegna námsferða eða starfs-
þjálfunar fjarri föstum vinnustað skv. ákvæðum þessarar greinar, fer
eftir almennum reglum 5. kafla aðalkjarasamnings.
4. Yfirvinna embættisdómara og saksóknara.
4.1. Þóknun fyrir yfirvinnu embættisdómara og saksóknara, þ.á m. yfirsaka-
dómara, yfirborgardómara og vararíkissaksóknara, skal greidd skv. úr-
skurði 3 manna nefndar, sem í eiga sæti fulltrúar tilnefndir af dóms-
málaráðuneyti, fjármálaráðuneyti og viðkomandi dómarafélagi.
5. FæSi og mötuneyti.
5.1. Starfsmenn, sem eru við störf á föstum vinnustað a.m.k. tvær klukku-
stundir fyrir matarhlé og aðrar tvær klukkustundir eftir matarhlé, skulu
hafa aðgang að matstofu eftir því sem við verður komið, sbr. ákv. 5.2.
Matstofa telst sá staður í þessu tilviki, þar sem hægt er að bera fram heit-
an eða kaldan mat aðfluttan eða eldaðan á staðnum. Á þeim vinnustöðum,
þar sem ekki er aðstaða til að matast, skal reynt að tryggja starfsmönnum
aðgang að nærliggjandi matstofum á vegum ríkisins. Húsakynni skulu
vera í samræmi við heilbrigðisreglugerðir. Ríkið greiði kostnað við
rekstur mötuneytis. Starfsmenn greiði hins vegar efnisverð matarins.
5.2. Starfsmenn, sem ekki hafa aðgang að matstofu, en ættu að hafa það
samkvæmt 5.1. skulu fá það bætt með fæðispeningum, sem nema laun-
um fyrir 0,35 klst. í dagvinnu samkvæmt 101. launaflokki fyrir hvern
vinnuskyldudag. Því aðeins skal þó greiða þessa fæðispeninga, að
starfsmaðurinn hafi 25 klst. vinnuskyldu á viku, heimili hans sé ekki
á vinnustað, hann hafi aðeins 1/2 klst. matarhlé og fái ekki greidda
ferðapeninga fyrir vinnudaginn.
6. Búferlaflutningar.
6.1. Starfsmaður, sem er aðili að samningi þessum, hefur starfað í þjón-
ustu ríkisins í 5 ár og er síðan skipaður til starfs, sem gerir kröfu til
að hann flytji milli lögsagnarumdæma, á rétt á greiðslu fargjalda sinna
og fjölskyldu sinnar og hæfilegs flutningskostnaðar búslóðar úr ríkis-
sjóði. Réttur til slíkrar greiðslu vaknar að nýju 5 árum eftir að síðast
var flutt.
6.2. Starfsaldursskilyrði skv. 6.1. tekur þó eigi til dómarafulltrúa, enda sé
flutt eigi skemmri vegalengd en 100 km.
Benedikt Blöndal
Jón Finnsson Jón Rögnvaldsson Ólafur Nilsson
7- Gildistími.
7-1. Um gildistíma og uppsögn þessa dóms fer skv. ákvæðum laga nr. 46/
1973, sbr. lög 23/1977.
Sératkvæði.
Ekki er faliizt á, að í þessum dómi séu efnisrök fyrir ákvæði í gr. 1.2.
Jón G. Tómasson.
189