Tímarit lögfræðinga - 01.11.1980, Page 69
IV. KAFLI. Stjórn og trúnaðarráð.
7. gr. Stjórn félagsins er skipuð þrem mönnum og þrem til vara. For-
mann skal kjósa sérstaklega en aðra aðalstjórnarmenn skal kjósa í senn
og skiptir stjórnin síðan með þeim verkum, annar er gjaldkeri og hinn ritari.
Gjaldkeri gegnir jafnframt varaformannsstarfi ef með þarf. Varastjórnar-
menn skal kjósa í senn. Formaður kveður varamann til stjórnarfunda í for-
föllum aðalmanns. Jafnan er þó heimilt að boða varastjórnarmenn og sitja
þeir þá stjórnarfundi án atkvæðisréttar nema annað leiði af forföllum aðal-
manns.
8. gr. Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkun-
um er lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félags-
ins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðr-
um aðilum. Gerðir stjórnarinnar skulu jafnan bókfærðar.
9. gr. Trúnaðarráð félagsins skipa 10 menn, stjórnarmenn, varastjórn-
armenn og þar að auki fjórir menn kjörnir á aðalfundi ár hvert. Leitast skal
við að haga kjöri stjórnar og trúnaðarmannaráðs þannig að sem flestir hópar
lögfræðinga í ríkisþjónustu eigi þar fulltrúa.
Verkefni trúnaðarráðs er að undirbúa kröfugerð félagsins varðandi sér
kjarasamning sbr. 2. mgr. 3. gr. I. nr. 46/1973, svo og vera stjórninni til
ráðuneytis um önnur meiriháttar kjaramálaatriði.
Stjórnin skal jafnan leitast við að fylgja tillögum trúnaðarráðs. Verði
ágreiningur í trúnaðarráði, svo sem um kröfur um röðun í launaflokka, sker
stjórnin úr.
V. KAFLI. Stofnun. Ákvæði til bráðabirgða.
10. gr. Setning samþykkta fyrir Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu
er nafnbreyting og endurskipulagning á Ríkisstarfsmannadeild Lögfræðinga-
félags íslands, er stofnuð var með breytingu á samþykktum Lögfræðinga-
félags islands 13. desember 1973, sbr. V. kafla í samþykktum Li. SLR tekur
þvf við öllum eignum og skuldbindingum Ríkisstarfsmannadeildar Lí og
kemur að öllu leyti í hennar stað.
Þannig samþykkt á aðalfundi Ríkisstarfsmannadeildar Lögfræðingafélags
íslands, nú Stéttarfélags Lögfræðinga í ríkisþjónustu, sem haldinn er að
Hverfisgötu 26, Reykjavík 29. apríl 1980.
191