Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Qupperneq 8

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Qupperneq 8
lögreglumannsins og heilbrigt mat á öllum aðstæðum og þeim hagsmunum, sem i húfi eru. Minnt skal á það, að lögregiumenn þurfa tíðum að taka skjótar ákvarðanir og framfylgja þeim — og bera síðan ábyrgð á þeim að lögum, ef mat þeirra reynist rangt í verulegum atriðum. Löggæzlustörf krefjast mikilla og margvíslegra samskipta við borgarana og bjóða því upp á árekstra af ýmsu tagi. Lögreglan er að jafnaði undir smásjá og þarf að vera það, þar sem henni er fengið mikið og vandmeðfarið vald. Því riður á miklu, að vel sé vandað val á lögreglumönnum og kostað kapps um góða menntun þeirra og þjálfun, ekki sízt með það í huga að auka þeim víðsýni og skilning á mannlegu eðli. Ýmis rök liggja til þess, að íslenzka lögreglan sé — eða eigi að vera vel í stakk búin til lipurra og árekstralítilla samskipta við almenning. Lögreglan gefur betri mynd hér á landi en víðast annars staðar af þjóðinni sjálfri, ólíkum skoðunum almennings og hugmyndaheimi. í lögregluna veljast menn úr mis- munandi starfsstéttum, menn sem hafa áður fengizt við ýmis algeng störf. íslenzkir lögreglumenn fæðast ekki í stéttina með eina sál og einn vilja, ein- angraðir frá lífi og starfi samborgaranna. Þetta leiðir hugann að öðru nátengdu sérkenni íslenzku lögreglunnar, þ. e. sumarafleysingavinnu námsmanna vio löggæzlu. Hún hefur gildi á tvo vegu. Með námsfólkinu berast ný og fersk við- horf inn í stéttina, og nærvera þess dregur úr hættu á þröngsýnni stéttarsam- stöðu, auk þess sem hún getur eytt ásökunum um stéttarlegar yfirhylmingar. Fróðleg úrtakskönnun á viðhorfum almennings til lögreglunnar og samskipt- um við hana var fyrir nokkrum árum gerð af Erlendi S. Baldurssyni, afbrota- fræðingi. Samanburður var gerður á úrtökum úr þjóðskrá í Reykjavík, Vest- mannaeyjum og Suður-Múlasýslu.1) Niðurstaðan varð sú, þegar á heildina var litið, að almenn viðhorf flestra gagnvart lögreglunni voru jákvæð. Einungis 5,6% töldu samskiptin við lögregluna slæm. En þegar spurt var nánar um ein- staka þætti samskiptanna, var afstaða fólks ekki nándar nærri eins jákvæð. Þannig segist tæpur helmingur aðspurðra trúa því, að lögreglan handtaki fólk oftar en nauðsyn krefur, og rúmur helmingur álítur lögregluna beita óþarfa- hörku við handtökur, þótt aðeins fimmtungur þess hóps telji það koma oft fyrir. Sýnt er af þessum atriðum og mörgum öðrum í niðurstöðum rannsóknar- innar, að menn eru ekki á eitt sáttir um ágæti íslenzku lögreglunnar. Talsvert virðist skorta á gott trúnaðarsamband milli almennings og lögreglu. Við vitum auðvitað ekki með neinni vissu, að hve miklu leyti svörin eru hreinskilin og sanngjörn í garð lögregiunnar. Ýmis úrræði hafa verið nefnd í umræðum að undanförnu til þess að tryggja réttláta meðferð kærumála á hendur lögreglumönnum. Úrræðum þessum virð- ist einkum ætlað að sannfæra almenning um réttláta og vandaða meðferð, svo sem hugmyndir um sérstaka rannsóknardeild og sérdómstól til að fara með slík mál. Erfitt er að finna rök fyrir slíkum ráðstöfunum. Enginn er sá maður á íslandi, hvorki lögfræðingur né annar, sem talizt getur sérfræðingur í rannsókn og meðferð á ætluðum brotum lögreglumanna ( starfi. Niðurstaðan af sllkum hugleiðingum hlýtur ætíð að verða sú, að enginn hafi meiri reynslu í rannsókn og meðferð slíkra mála en einmitt almennir dómstólar og rann- sóknarlögregla ríkisins. Jónatan Þórmundsson 1) Erlendur S. Baldursson, „Viðhorf almennings til lögreglunnar", Lögreglumaðurinn 1/1981, og „Samskipti almennings og lögreglunnar", Lögreglumaðurinn 2/1981. 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.