Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Side 53

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Side 53
skuli skipuð 5 mönnum og engum til vara, en áður var stjórnin skipuð 3 mönn- um og 3 til vara. í stjórn félagsins voru kjörin: Þorsteinn A. Jónsson, deildarstjóri, formaður. Meðstjórnendur: Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur Friðrik Sophusson, alþingismaður Ingibjörg Benediktsdóttir, aðalfulltrúi Ragnheiður Bragadóttir, lögfræðingur. Markmið sakfræðifélagsins eru: 1. Að efna til fyrirlestra og ráðstefnuhalds um sakfræðileg efni á sem víð- tækustum grundvelli. 2. Að stuðla að endurbótum á refsilöggjöf og meðferð opinberra mála, svo og refsiframkvæmd, með því m.a. að vekja stjórnvöld og almenning til umræðna og umhugsunar um vandamál á þessu sviði. 3. Að stuðla að rannsóknum á sakfræðilegum efnum. 4. Að aðstoða einstaka félagsmenn við að vinna að ofangreindum mark- miðum. Rétt til að ganga i félagið eiga: 1. Allir íslenzkir lögfræðingar og afbrotafræðingar, svo og stúdentar í þessum greinum. 2. Aðrir þeir, sem áhuga hafa á markmiðum félagsins og líklegir eru til að leggja þar eitthvað af mörkum, enda samþykki stjórn félagsins inntöku þeirra. Þeir, sem áhuga hafa á að taka þátt í störfum félagsins, eru hvattir til að hafa samband við einhvern stjórnarmann. Starf félagsins í vetur er ekki fullmótað, en ráðgert er að halda 2-3 fundi fram á vor. Auk venjulegra aðalfundarstarfa flutti undirritaður fyrirlestur á aðalfundi fé- lagsins, er nefndist „Staða fangelsismála“. í fyrirlestrinum var fyrst gerð grein fyrir þeim fangelsum, sem starfrækt eru í dag. Þá var rætt um aðalstefnumótun laga um fangelsi og vinnuhæli frá 1973. Var bent á, að stefnumótun laganna hefði ekki verið framfylgt og talið ólíklegt, að svo yrði gert hér eftir. Er þá aðallega átt við ákvæði laganna um ríkis- fangelsi og unglingavinnuhæli. Rætt var um aðdraganda þess, að dómsmálaráðuneytið tók yfir fullnustu á öllum refsivistardómum og gerð var grein fyrir þeirri meginstefnu, sem fylgt er í dag, þ.e. að öllum óskilorðsbundnum refsivistardómum sé fullnægt og að reynt sé að hafa fullnustuna í sem eðlilegustu framhaldi af dómsuppsögu. Fram kom, að um helmingur dómþola afplánaði refsivist sína að fullu, en hinn helmingurinn fengi reynslulausn, annaðhvort eftir að hafa afplánað 1/2 eða 2/3 hluta refsitímans. Bent var á, að þótt almenn hegningarlög gerðu ráð fyrir, að almennt væri reynslulausn veitt eftir að menn væru búnir að af- plána 2/3 hluta refsitímans, fengi meirihlutinn reynslulausn eftir helmings- afplánun. Þá kom fram, að föngum hefði fjölgað úr 33 að meðaltali á dag á árunum eftir 1970 I rúmlega 65 á árinu 1980 og síðan. Þetta þýðir, að á árunum upp 47

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.