Tímarit lögfræðinga - 01.04.1989, Blaðsíða 79
ferðisbrotamála. Fluttur 5. nóvember 1987 á fræðafundi Orators, félags laga-
nema. — Efnahagsbrot í atvinnustarfsemi lögaðila. Fluttur 7. nóvember 1987
á málþingi lagadeildar vegna 75 ára afmælis Lögmannafélags Islands. — Efna-
hagsbrot. Fluttur 16. nóvember 1987 á námskeiði Lögregluskóla ríkisins fyrir
rannsakendur skatta- og efnahagsbrota.
Ritstjórn: Ritstjóri Tímarits lögfræðinga. — í ritnefnd Nordisk Tidsskrift
for Kriminalvidenskab og Scandinavian Studies in Law.
Rannsóknir: Auk áðurgreindra verkefna vann Jónatan að eftirtöldum verk-
efnum: Kynferðisbrot: verknaðarlýsingar, rannsókn, málsmeðferð, viðurlög og
önnur viðbrögð þjóðfélagsins (tengt starfi Nauðgunarmálanefndar). — Efna-
hags- og fjármunabrot. — Islensk refsilögsaga, alþjóðlegar refsireglur og
réttarhjálp.
Páll Sigurðsson:
Ritstörf: Samningaréttur. Yfirlit um meginreglur íslensks samningaréttar.
Reykjavik 1987, 381 bls. — Um takmörk úrræða vegna vanefnda í kaupum.
Krafa kaupanda gegn heimildarmanni seljanda eða öðrum fyrri viðskiptalið
vegna vanefndar. Hliðsjónarrit í samninga- og kauparétti XXI. Reykjavik 1987,
39 bls. — ítök og ítaksréttur. Nokkrir megindrættir ítaksréttinda. Úlfljótur,
tímarit laganema 40 (1987), bls. 7-46. — Um ábyrgðarskírteini, ábyrgðartíma
og úrræði vegna galla á seldu lausafé. Úlfljótur, tímarit laganema 40 (1987),
bls. 107-117. — Eftirþankar um ógildingarákvæðið nýja. Tímarit lögfræðinga
36 (1986), bls. 256-259.
Fyrirlestrar: Die Entwicklung des islándischen Strafrechts und Strafprozess-
rechts im Mittelalter und bis 1800. Fluttur 10. ágúst 1987 á þýsk-íslensku
refsiréttarmálþingi í Reykjavík dagana 10.—14. ágúst 1987.
Ritstjórn: Njörður, timarit Hins íslenska sjóréttarfélags. — Erindi og grein-
ar, ritröð Félags áhugamanna um réttarsögu.
Rannsóknir: Páll vann að þessum verkefnum: Samningu ritgerðar um fornar
réttarreglur um lagastefnur gegn látnum mönnum. — Vakningarhreyfingar um
lögbókarsmíð á miðöldum.
Sigurður Líndal:
Ritstörf: Reglugerðarríkið. Frelsið 1986, bls. 113-123. (Heftið kom út síðari
hluta árs 1987). — Political parties. Iceland 1986. Handbook published by
the Central Bank of lceland. Reykjavík 1987, bls. 116-124.
Fyrirlestrar: Þingvellir and Alþingi: An Outline of History. Fluttur 20. maí
á ráðstefnu Alþjóðasamtaka um heimspeki laga og þjóðfélags (International
Association for Philosophy of Law and Social Philosophy) I Reykjavík og á
Þingvöllum dagana 18.—20. maf 1986. (Féll niður úr síðustu skýrslu). —
Reglugerðarríkið. Fluttur 3. mars á 7. Viðskiptaþingi Verzlunarráðs íslands
1987. — Hvert stefnir stjórnskipun íslendinga? Fluttur 7. mars 1987 á vegum
Menningarráðs ísafjarðar og Menntaskólans á Ísafirði. — Stjórnkerfið og
meðferð mála í stjórnsýslunni. 8 fyrirlestrar fluttir 25.— 26. mars 1987 og 8
fyrirlestrar fluttir 13.—14. október 1987 á vegum Stjórnsýslufræðslu ríkisins.
— Die Entwicklung der Verfassung und des Strafrechtssystems im altislánd-
ischen Freistaat. Fluttur 10. ágúst á þýsk-íslensku refsiréttarmálþingi í Reykja-
vík dagana 10.—14. ágúst 1987. — Um Rasmus Kristján Rask og dvöl hans
73