Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 4

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 4
um að starfskjörum þeirra væri verulega áfátt. Til dæmis um þau má taka að byrjunarlaun dómarafulltrúa fyrir verkfall voru um kr. 55.000 á mánuði. Sllk sultarlaun verða auðvitað ekki fegruð með því að sýna fram á að ein- hverjir hafi enn minna. Minna má á að þær prósentuhækkanir launa, sem kveðið er á um í kjara- samningnum nýja, þýða í raun kjararýrnun — ef ekki kemur fleira til — þar sem ekki eru minnstu llkur til að þær haldi I við verðbólgu. Gildi samningsins felst fyrst og fremst I þeim fyrirheitum sem þar eru gefin um endurskoðun launakerfis háskólamanna hjá ríkinu, en markmið hennar skal vera að þeir njóti sambærilegra kjara og háskólamenntaðir menn á almennum vinnu- markaði. Enginn veit nú með vissu hvort eða hversu vel þessi fyrirheit verða efnd, en af því ræðst hvort friður helst milli rlkis og háskólagenginna starfs- manna þess. Dómarafulltrúar annast verulegan hluta af dómsathöfnum við dómstóla lands- ins. Þetta á einkum við um þinglýsingadóm, skiptarétt, fágetarétt og uppboðs- rétt, en að nokkru leyti einnig um sakadóm og almenna dómstólinn. Verk- efnum dómstólanna hefur mjög fjölgað á undanförnum árum og vinnuálag starfsfólks við þá hefur þyngst til muna. Mæðir þar einna helst á dómara- fulltrúum, því að yfirleitt eru þeir settir til að vinna hinar hversdagslegu að- kallandi dómsathafnir sem ekki mega bíða, svo sem að þinglýsa skjölum, kveða upp gjaldþrotsúrskurði og halda skiptafundi og bjóða upp eignir. Engan þarf að undra að lögfræðingar í þessum störfum eru sárgramir. Þeir hafa lagt að baki langa og stranga skólagöngu, vinna erilsöm og vandasöm störf fyrir lág laun. Óhjákvæmilegt er að menn velti því fyrir sér hvaða áhrif þessi bágu kjör lögfræðinga, sem hér hefur verið lýst, hafa á starfsemi dómstólanna. Út í þá sálma er ekki rúm til að fara hér. Aðeins skal minnt á tvennt: Líklegt er að bág kjör valdi þvf að vel hæft fólk fáist síður en ella til starfa við dómstólana, eða að það leiti fremur en ella burt í önnur störf, þegar það hefur aflað sér málflutningsréttinda með þriggja ára starfstlma. í annan stað leiðir af þessu og þungu vinnuálagi að dómsathafnir verða ekki svo vandlega unnar sem vera bæri. Hér hefur verið staldrað við störf dómarafulltrúa. Það er ekki vegna þess að þau séu merkilegeri eða vandasamari en störf annarra lögfræðinga í ríkis- þjónustu, heldur eingöngu vegna þess, að sá sem þetta ritar hefur af þeim nokkur kynni og hyggur, að umræða um þau geti varpað Ijósi á kjör lög- fræðinga hjá ríkinu yfirleitt og reyndar margra annarra háskólamanna I opin- berri þjónustu. Þessu fólki finnst að það hafi ekki hlotið og hljóti ekki enn eðlilega umbun í starfskjörum með tilliti til ábyrgðar, sérhæfni og menntunar. Kjarasamningurinn nýi bætir að svo stöddu ekki úr þessu, en hann gefur vonir um viðunandi kjör, ef samningsaðiljar verða samstiga um framkvæmd hans. Finnur Torfi Hjörleifsson 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.