Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 12

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 12
Þróunin hefur orðið sú í nágrannalöndunum og víða um heim, að víStæk bótaábyrgð á öðrum grundvelli en að framan greinir hefur verið lögð á framleiðendur og í mörgum tilvikum seljendur. Er ýmist um að ræða hertar kröfur um aðgæslu (rýmkaða sakarreglu), ábyrgð án sakar (hreina hlutlæga ábyrgð) eða að slakað er á kröfum um sönn- un. Víðtæk bótaábyrgð hefur einkum verið látin ná til tjóns, sem al- mennur neytandi verður fyrir af völdum iðnaðarvamings eða vöru, sem seld er í almennum verslunarrekstri. Slík ábyrgð myndi síður verða lögð á vegna sölu milli einstaklinga utan atvinnurekstrar. Hins vegar leikur meiri vafi á um bótagrundvöll, þegar atvinnurekandi verður fyrir tjóni vegna hættulegs eiginleika hlutar, sem hann hefur keypt í atvinnuskyni hjá öðrum atvinnurekanda. Víðtæk ábyrgð hefur verið rökstudd með því, að neytandi eigi erfitt með að verjast tjóni af þessu tagi og verði að treysta á að söluhlutur sé ekki hættulegur. Framleiðandi og einnig í nokkrum mæli seljandi eigi hins vegar auðveldara með að meta hvort hætta sé á ferðum og gera viðeigandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir tjón. Víðtæk ábyrgð hvetji þá til slíkra ráðstafana og auðvelt sé að dreifa tjóns- kostnaðinum með því móti að kaupa ábyrgðartryggingu. Auk þess sé aðstaða þeirra í skaðabótamálum oft sterkari m.a. vegna þess að þeir eigi betri aðgang að sönnunargögnum um orsakir tjóns en tjónþoli (neytandi). Margir seljendur þekkja að vísu lítið eða ekkert til þess hvernig vara, sem þeir selja, er búin til. Fjölmargar vörur koma til seljanda 1 lokuðum umbúðum og fara þannig frá honum í hendur neytanda. Aðrar vörur eru þannig, að gegn og skynsamur seljandi hefur ekki aðstöðu eða þekkingu til að dæma um, hvort þær eru haldn- ar hættulegum eiginleikum. Þegar svo stendur á, hafa því sumir talið óeðlilegt að leggja víðtæka ábyrgð á seljanda, enda þótt framleiðandi beri slíka ábyrgð. Ef framleiðandi er hins vegar ekki í því landi, sem varan er seld, hefur þrátt fyrir fyrrgreind rök verið rík tilhneiging til að fella víðtæka ábyrgð á innflytjanda eða aðra milliliði, sökum þess að neytandi á þá oft óhægt með að leita réttar síns gagnvart fram- leiðanda. Rök gegn víðtækri ábyrgð vegna tjóns af völdum hættulegra eigin- leika eru m.a. þau, að hún geti komið í veg fyrir tækniframfarir eða tafið fyrir þeim, hún sé óeðlilega þungbær og stundum í miklu ósam- ræmi við endurgjald seljanda eða framleiðanda. Einnig sé vafasamt að grípa til hreinnar hlutlægrar ábyrgðar, þegar kostur sé á öðrum víðtækum bótareglum, sem líklegri séu til þess að viðhalda hæfilegu 90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.