Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 13

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 13
jafnvægi milli hagsmuna tjónþola og tjónvalds, t.d. sakarlíkindareglu eða rýmkaðri sakarreglu. Lítið liggur fyrir um afstöðu íslenskra dómstóla til víðtækrar ábyrgð- ar á þessu sviði. Dómar um hlutlæga ábyrgð vinnuveitanda á vinnu- slysum vegna bilunar eða galla véla og tækja benda til þess, að slíkri bótareglu yrði beitt um sambærileg tilvik á öðrum sviðum, ekki síst um ábyrgð framleiðanda og eftir atvikum einnig seljanda.3 Aðaldómurinn um þetta efni er þó H 1974, 977. Málsatvik voru þau, að afgreiðslumaður (26 ára gömul kona) í verslun missti að mestu sjón á öðru auga, er sódavatnsflaska sprakk skyndilega í versluninni. Sóda- vatnið var búið til í ölgerð í Reykjavík, en flaskan var frá erlendri verksmiðju. Var ölgerðin dæmd skaðabótaskyld vegna slyssins með svofelldum rökstuðningi: „Einhlít skýring hefur eigi komið fram um orsakir þess, að flaskan sprakk. Telja verður sannað með matsgerð og vætti matsmanna, sem eigi er hnekkt af hálfu aðaláfrýjanda með yfirmatsgerð eða öðrum sér- fræðilegum gögnum, að á flöskunni hafi verið „veikur punktur“, er valdið hafi hættu á, að flaskan spryngi við 20—25 stiga hita. Sóda- vatn er framleitt til sölu á almennum markaði og selt í ýmsum versl- unum með misjafnri aðstöðu til geymslu. Viðurkennt er, að verslun sú, sem gagnáfrýjandi starfaði í, er slysið varð, keypti sódavatnsflöskuna frá aðaláfrýjanda, að öllum líkindum hinn 5. janúar 1968, og að aðal- áfrýjandi hafi eigi látið gagnáfrýjanda [tjónþola] í té leiðbeiningar um þá hættu, sem því væri samfara að geyma flösku þessa í vistar- verum, þar sem hiti yrði slíkur sem að framan greinir. Gera verður ríkar kröfur til þeirra, sem framleiða neysluvarning til sölu á almenn- um markaði, um, að varningur og umbúðir um hann séu svo úr garði gert, að af venjulegri meðferð varningsins stafi eigi hætta fyrir þá, sem meðhöndla hann eða eru í námunda við hann. Ekki er leitt í ljós, að tjón gagnáfrýjanda stafi af annarri orsök en þeirri, sem matsmenn telja líklegasta. Eigi er heldur sýnt fram á, að orsökin sé óhæfileg geymsla eða meðferð flöskunnar í verslun þeirri, sem gagnáfrýjandi starfaði í, er slysið varð, né að slys verði rakið til hegðunar gagn- áfrýjanda. Með vísan til þessa og til raka héraðsdóms, sem skipaður var sérfróðum samdómsmönnum, þykir bera að staðfesta þá niður- stöðu hans, að aðaláfrýjandi beri fulla fébótaábyrgð á slysi gagn- áfrýjanda, enda þykir gagnáfrýj andi eiga beinan bótarétt á hendur aðaláfrýjanda, eins og hér stendur á.“ 3 Sjá Arnljótur Bjömsson, 174 o.áfr., einkum 176—181. 91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.