Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 25

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 25
leg, félagsleg og menningarleg réttindi. 1 þessari tvískiptingu birtist ágreiningurinn um það, hvaða réttindi séu grundvallarmannréttindi. I mannréttindasáttmála Evrópu er fyrst og fremst fjallað um hin hefðbundnu borgaralegu og pólitísku réttindi, sem þekkt eru í stjórnar- skrám vestrænna ríkja. Hinn 18. október 1961 var samþykktur á veg- um Evrópuráðsins Félagsmálasáttmáli Evrópu, en þar er lögð tiltekin upplýsingaskylda á hendur aðildarríkj um um efndir á efnisákvæðum sáttmálans. I stjórnarskrárfrumvarpi Gunnars Thoroddsen frá 1983 er auk ákvæða um pólitísk réttindi að finna ákvæði um félagslega aðstoð, menntun og fræðslu og rétt manna til vinnu og orlofs. Af því sem sagt hefur verið má sjá, að mannrétindahugtakið hefur bæði breikkað og dýpkað og þó mest eftir síðustu heimsstyrjöld fyrir frumkvæði alþjóðasamtaka, þeirra á meðal Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins. Er þó fátt eitt talið hér af alþjóðasamningum á sviði mannréttinda, sem gerðir hafa verið á síðustu árum og áratugum. Þau mannréttindi, sem veitt var lögvernd í stjórnarskrám vestrænna ríkja og nefnd hafa verið pólitísk og borgaraleg réttindi hafa einnig verið flokkuð sem fyrsta kynslóð mannréttinda. Önnur kynslóð mann- réttinda hafa þá verið nefnd efnahagsleg, félagsleg og menningarleg mannréttindi sem hlutu lögfestingu í stjómarskrám Mexíkó, Spánar og Sovétríkjanna. Á allra síðustu tímum hafa bæst við tvær kynslóðir mann- réttinda, sem eru rétturinn til þróunar og síðast rétturinn til friðar. Við flokkun tveggja fyrstu kynslóða mannréttinda er sagt, að ein- kenni hinnar fyrstu séu skýr og ótvíræð fyrirmæli til ríkisvaldsins um afskiptaleysi á tilteknum sviðum mannlífsins og tiltölulega auð- velt sé að túlka og framfylgja fyrirmælum þessum með málssókn fyrir dómstólum, þar sem efnisinnihald þeirra sé skýrt og afmarkað. Það einkenni hins vegar ákvæði um mannréttindi af annarri kynslóð, að með þeim sé lögð skylda til aðgerða á herðar ríkisvaldinu án þess að efni þeirra skyldna sé svo ljóst, að þegnar njóti í raun réttinda samkvæmt ákvæðum þessum. Þau séu því almennar stefnuyfirlýsingar án raunverulegs innihalds. Verndinni, sem ætlað sé að veita, verði ekki fullnægt með lögsókn fyrir dómstólum af hálfu þeirra sem telja efnis- ákvæði þeirra á sér brotin. Ekki fellst höfundur þessara hugleiðinga á, að stjórnarskrárákvæð- um um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda verði ekki framfylgt með svipuðum hætti og ákvörðun um pólitísk og borgaraleg réttindi. 1 71. gr. stjórnarskrárinnar er að finna dæmi um mannréttindi af annarri kynslóð, þ.e. um réttinn til menntunar. Með 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.