Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 30

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 30
meðferð í opinberu máli til mannréttindanefndar Evrópuráðsins, tóku Islendingar við sér. Hefur nú að undanförnu verið unnið allrösklega að því að semja ný lög um meðferð opinberra mála, þar sem um veru- lega framför er að ræða samkvæmt þeim drögum sem höfundur þess- ara hugleiðinga hefur séð, enda þótt þar sé einnig að finna varhuga- verð ákvæði, t.d. um gerræðislegan rétt dómara til að svipta sak- borning rétti til að velja sér verjanda. Freistandi hefði verið að ræða hér um fleiri svið mannréttindamála og skuldbindingar Islendinga í því sambandi. Ekki hefur gefist tæki- færi til að fjalla um mannréttindasamninga á sviði Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar né alþj óðasamninginn um réttarstöðu flótta- manna. Þá hefði og verið freistandi að gera alþjóðasáttmálum um félagsleg réttindi nokkur skil, en það verður ekki gert hér. Ég gat þess að nú væri talað um þriðju og fjórðu kynslóð mann- réttindareglna og þá átt við rétt til þróunar og rétt til friðar. Skilyrði þróunar sem víðast á jörðinni og skilyrði allsherj arfriðar eru m.a. þau, að tryggð verði ekki aðeins pólitísk og borgaraleg réttindi manna, heldur einnig efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi manna í víðtækustu merkinu. Það blasir við öllum þeim sem sjá vilja, að ekki næst árangur með því að tryggja annað hvort einungis borgaraleg og pólitísk réttindi eða einungis efnahagsleg, félagsleg og menningar- leg réttindi. Mér virðist að sagan kenni okkur, að til þess að unnt sé að njóta borgaralegra og pólitískra réttinda verði efnahagsleg, félags- leg og menningarleg réttindi annarrar kynslóðar að vera tryggð. Þess vegna verði að tryggja bæði réttindi fyrstu og annarrar kynslóðar og þá tekst vonandi að tryggja þriðju og fjórðu kynslóðar mannréttindi. Ekki er þó að vænta verulegra úrbóta á þessu sviði, nema stjórn- völd og almenningur vakni til áhuga um þessi réttindi. Slíkur áhugi verður helst vakinn með fræðslu, bæði fræðslu um brot gegn mann- réttindum og fræðslu um stjórnarskrárbundin ákvæði um mannrétt- indi og sáttmálabundin ákvæði um mannréttindi. Mannréttindi eru ekki einungis tilefni til umræðu á hátíðisdögum, heldur verða þau að vera snar þáttur hversdagslífsins. Lifandi áhugi og umræða um mann- réttindi getur ein tryggt það, að fulltrúar á löggjafarþingi neyðist til þess við allar ákvarðanir um löggjafarmálefni að taka tillit til reglna um mannréttindi skv. landsrétti og þjóðarétti, bæði þeirra sem nú eru í gildi og þeirra, sem vænta má að settar verði á næstunni, þannig að ætíð verði rökstutt þegar ný löggjöf er til umræðu, á hvei’n hátt hún kunni að stuðla að þróun mannréttinda og þai’ með bætt- um heimi. 108
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.