Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 35

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 35
III. LAGAREGLUR UM STJÓRNUN BÚVÖRU- FRAMLEIÐSLUNNAR. Allt fram á þennan áratug voru engar takmarkanir af hálfu stjórn- valda á því hvað hver bóndi framleiddi mikið af einstökum tegundum búvara. Með afurðasölulögunum frá 1934 og síðar lögum um Fram- leiðsluráð landbúnaðarins, fyrst 1947, var tekin upp opinber verðskrán- ing á helstu búvörum og jafnframt voru lögleiddar heimildir til inn- heimtu á verðjöfnunargjöldum, sem ætlað var að jafna afurðaverð til bænda. Þá er rétt að minna á að með lögum frá 1959 var bændum bannað að mæta halla á söluverði landbúnaðarvara á erlendum mörk- uðum með því að hækka söluverð þeirra innanlands. Jafnframt var ákveðið, að ríkið legði fram fé til að tryggja greiðslu á þeim halla, sem bændur kynnu að verða fyrir af útflutningi landbúnaðarvara, en greiðslan skyldi þó ekki vera hærri en sem svaraði 10% af heildar- verðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Þar með var tekin upp greiðsla á svonefndum útflutningsbótum. Tilkoma þeirra breytti hins vegar ekki því, að bændur höfðu frjálsræði um, hvað þeir framleiddu, og í meginatriðum fengu framleiðendur sauðfjárafurða og mjólkur sama afurðaverð, hvar sem þeir bjuggu á landinu og án tillits til þess, hvað þeir framleiddu mikið. Framleiðsla búvara fór vaxandi, en markaðir erlendis jukust ekki að sama skapi, og það verð, sem þar fékkst fyrir afurðirnar, skilaði íslenskum bændum æ minna upp í framleiðslukostnað þeirra. Með lög- um nr. 15/1979 varð veruleg stefnubreyting í landbúnaðarmálum hér á landi. Vegna breyttra aðstæðna við framleiðslu og sölu búvöru voru lög- festar heimildir, sem miðuðu að því að draga úr búvöruframleiðslunni svo að hún hæfði innlendum markaði. I 2. gr. a laga nr. 15/1979 og síð- ar sömu grein laga nr. 95/1981, sbr. 1. nr. 45/1981, var það sérstæða ákvæði, að yrði búvöruframleiðsla meiri en þöi'f væri fyrir á innlend- um markaði, en ekki fengist viðunandi verð fyrir umframframleiðsl- una á erlendum mörkuðum að mati Framleiðsluráðs, væri landbúnaðar- ráðherra að fengnum tillögum Framleiðsluráðs og fulltrúafundar Stétt- arsambands bænda heimilt með reglugerð að grípa til tiltekinna tíma- bundinna ráðstafana. Með þessum ráðstöfunum var annars vegar heim- ilað að ákveða mismunandi verð búvöru til framleiðenda, m.a. þannig að fullt verð yrði greitt fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar en út- flutningsverð fyrir það sem umfram væri, niðurgreiðslufé yrði skipt eftir framleiðslumagni og gjald til verðjöfnunar milli framleiðenda mætti vera mishátt eftir bústærð. Hins vegar var veitt heimild til að 113
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.