Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 47

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Qupperneq 47
G hafði rekið minkabú í Kópavogi. Á árinu 1947 lét hann gera teikningu að sundmarðahúsi, og lýsti loðdýraráðunautur ríkisins því, að hið fyrirhugaða hús yrði viðurkennt „sem lögmæt varsla á minkabúi". G reisti húsin ásamt tilheyrandi búrum og tækjum. Vegna ákvæða laga nr. 32/1951 um bann við sundmarðaeldi varð G að hætta rekstri búsins, og af því tilefni höfðaði hann mál á hendur ríkissjóði til greiðslu bóta vegna eigna- og atvinnutjóns. 1 dómi Hæstaréttar segir að G hafi reist sundmarðahús sín og aflað tækja til sundmarðaeldis í réttmætu trausti þess, að hon- um yrði að lögum veitt heimild til að reka sundmarðabú. Bann það, sem með lögum nr. 32/1951 vai’ lagt við sundmarðaeldi hér á landi, hafi leitt til þess, að nefnd hús og tæki hafi orðið ónot- hæf eign. Var krafa G um bætur fyrir eignirnar tekin til greina. Hins vegar var sýknað um bætur vegna atvinnutjóns og þar vísað til þess að sundmarðaeldi hefði verið bannað hér á landi sökum hættu þeirrar og spjalla, er sundmerðir, er úr haldi sleppa, valda. Þá er og hugsanlegt að jafnræði manna sé raskað svo með reglum um slíka stjórnun og framkvæmd að komið sé út fyrir almennar tak- markanir. Það mætti tína til ýmis tilvik, þar sem spurningar af þessu tagi vakna, og vonandi gefst tækifæri hér á eftir til að ræða um slík álitaefni. Við megum heldur ekki gleyma því, að við erum hér að fjalla um mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar og þær grundvallarreglur sem gilda um athafna- og atvinnufrelsi manna. Það er því full ástæða til að hugleiða, hvort þörf sé breytinga á ákvæðum stjórnarskrárinnar til að tryggja betur vernd þessara réttinda og hvaða leikreglum löggjafar- valdið þurfi að fylgja í því efni. Það skal nefnt, að í tillögum stjórnar- skrámefndar, sem lagðar voru fram á árinu 1983, var ekki lagt til að gerð yrði breyting á orðalagi núverandi 67. og 69. gr. stjórnarskrár- innar. Við samantekt á erindinu var stuðst við eftirtalin rit: Andersen, Poul: Nœringsretlen i hovedtrœk, 3. útg., Khöfn 1944. Andenæs, Johs.: Statsforfatnmgen i Norge, 6. útg., Osló 1986. Fleischer, Carl August: Grunnlovens grenser, Osló 1968. Gaukur Jörundsson: Um eignarnám, Rvík 1969. — Stjórnskipuleg vernd aflahæfis, atvinnuréttinda og atvinnufrelsis. Úlfljótur 1968, 3. tbl. Ólafur Jóhannesson. Stjórnskipun íslands, Rvík 1978. Skovgaard, Henning: Offentlige myndigheders erstatningsansvar, Khöfn 1983. Þorkell Jóhannesson: Alþingi og atvinnumálin, Rvík 1948. Zahle, Henrik: Dansk forfatningsret 5, Menneskerettigheder, Khöfn 1987. 0rebech, Peter: Konsesjoner i fisket, Osló 1982. 125
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.