Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 53

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1989, Blaðsíða 53
skýringargögnum, sem þar var vitnað til (þ.e. greinargerðar með frumvarpi og framsöguræðu ráðherra á Alþingi). Hvað sem öðru líður verður ekki annað sagt en að oft hafi komið fram léttvægari röksemdir í héraðsdómum. Reglurnar um samningafrelsi og um skuld- bindingargildi samninga eru gamalgrónar í íslenskum rétti og þarfn- ast þær engrar réttlætingar á þessum vettvangi. Alkunnugt er, að lög- gjafinn hefur stundum séð ástæðu til að takmarka gildi þessara reglna á tilteknum sviðum, en þá kröfu ætti þá að mega gera til þess háttar ákvæða, að þau séu skýr og greinargóð, og þar sem um undantekningar- ákvæði er að ræða sýnist réttmætt að leggja ekki víðtækari merkingu í þau en ítrasta nauðsyn ber til (þó að sjálfsögðu þannig að þeim fylgi réttaráhrif). Ákvæðið í 29. gr. er varla undanþegið þessu lögmáli. Sé þessi stuttorða grein borin saman við tiltæk skýringargögn, kemur viss óskýrleiki í ljós, sem getur valdið vafa um réttan skilning ákvæðisins. Orðalagið „veiti viðtakanda betri rétt en hann hefur sam- kvæmt gildandi lögum“ er ónákvæmt og loðið. 1 stað „gildandi laga“ hefði verið eðlilegra að tiltaka ákveðin lög, svo sem kaupalögin nr. 39/ 1922. Af framsöguræðu viðskiptaráðherra með frumvarpi til 1. 56/ 1978 kemur að vísu fram, að einkum muni átt við kaupalögin (og þau ein nefnd í sambandi við 29. gr.) en þar er þá einungis rætt um ábyrgðartímann í 54. gr. kpl. Orðrétt segir þar: „Reglur 29. gr. um ábyrgðaryfirlýsingar leiða í reynd til þess, að óheimilt verður að semja um skemmri ábyrgðartíma en þann sem kveðið er á um í hinum frávíkjanlegu reglum kaupalaganna. Hér er um að ræða, að kaupandi verður, innan eins árs eftir að hann fékk söluhlut í hendur, að bera fyrir sig galla á honum. í viðskiptalífinu hefur talsvert eða jafnvel mikið borið á því, að seljendur semji sig undan þessum ábyrgðartíma og ákveði hann miklu skemmri, bæði með sjálfstæðum ábyi’gðaryfirlýsingum og yfirlýsingum, sem eru þátt- ur í stöðluðum samningsskilmálum, sem kaupendur eru látnir sam- þykkja ... “ 1 greinargerð, sem frumvarpinu fylgdi, er sérstaklega vísað t.il samkomulags, er Viðskiptaráðuneytið gerði við tiltekin viðskipta- samtök á árinu 1975, sem einkum var „ætlað að taka til vara eins og húsgagna, heimilistækja og annarra rafmagnsvara, teppa, úra og skartgripa", en tekið er þar fram, að samkomulagið hafi ekki tekið til bifreiða. Og víst er, að dráttarvélar eru þar ekki nefndar! Það, sem hér var sagt, gæti vissulega bent til þess, að ekki væri öruggt að leggja annan skilning í ákvæði 29. gr. en þann, að hún taki einungis til ábyrgðartímans og jafnvel einnig til tiltekinna muna eða vöru. Þá 131
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.