Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Blaðsíða 6
úr þeim hinum mikla skaga sem við það er kenndur og á að heita Héraðsdómur
Reykjaness á máli dómsmálayfirvalda. Hinn er kenndur við Reykjavík, þótt
hann taki yfir þrjá kaupstaði og tvo hreppa, hvert byggðalagið öðru merkara.
Hér leitast löggjafinn við að hafa óholl og órökvís áhrif á málið og er vonandi að
aðrir mótendur þess bæti um betur. Umdæmi héraðsdómstólanna skiptast í
þinghár. Rökrétt heiti umdæmanna væri þá þing. Mætti kenna hvert umdæmi
við aðalþingstað eða aðra merkisstaði. Mætti þá nefna Borgarþing, ísafjarðar-
þing, jafnvel Þorskafjarðarþing, Kjalarnesþing, Þverárþing, Vaðlaþing, Múla-
þing o.s.frv. Þótt heitið þing festist við umdæmi dómstólanna mundi enginn
nauður reka til að það orð kæmi fyrir sem liður í nöfnum þeirra. Reykjavík er þó
ótækt nafn á réttnefndu Kjalarnesþingi, sem hinsvegar mætti kalla Innes til
aðgreiningar frá Suðurnesjum með þingstað í Hafnarfirði. ísafjarðarþing mætti
kalla Vestfirði í vissum samböndum og minnir það á að einkenni lifandi máls er
tvíræði orða og margræði. Orð eins og á, loft, vín og list njóta þess að hafa ekki
verið smíðuð í lagadeild Háskóla íslands. Þar var hinsvegar orðum eins og
stjórnvald og stjórnvaldshafi skapað fátæklegt merkingarsvið með þeirri afleið-
ingu að kandídatar rita heilar ritgerðir þar sem stjórnvöld eru hvergi nefnd en
stjórnvaldshafar látnir taka yfir allt upphaflegt merkingarsvið orðsins. Orðið
stjórnsýsluhafi sýnist ekki rétt myndað eftir rökvísum lögmálum íslenskrar
tungu því að enginn hefur stjórnsýslu þótt hana megi hafa með höndum. Hér
sýnist merkingarsviði orðanna stjórnvald og sýslunarmaður hafa verið raskað að
óþörfu.
Auk mælts máls verða lögfræðingar að hafa tök á löggjafar-
máli, lögfræðimáli, dómstólamáli og stjórnsýslumáli. Þeir eru í aðstöðu til að
hafa mikil áhrif á móðurmál sitt, heillavænleg eða óholl. Ekki verður ofbrýnt
fyrir þeim, fremur en öðrum, að vanda mál sitt, auðga það og skýra með
nákvæmri og rökvísri hugtakanotkun og orðkynngi. Ef orðið íslenska verður
einn daginn nafn yfir fortíðarvanda, eins og sumt af þeim orðum sem valdsmenn
hafa reynt að granda, munu lög, tilskipanir og dómar verða málsagnfræðingum
drjúgt rannsóknarviðfang.
84