Tímarit lögfræðinga - 01.09.1992, Síða 16
Naar Straffesag er rejst mod en Dommer, eller naar han maa antages at have gjort sig
skyldig i utilb0rligt Forhold saavel som naar han er bleven uvederheftig eller
aandsvag, kan han suspenderes. Afg0relsen herom træffes, naar Talen er om en
Underretsdommer, af LandsrettensjJustitiarius og to af Rettens Medlemmer.'og naar
Talen er om en H0jesterets-, eller Landsretsdommer, af H0jesterets Justitiarius og to
af Rettens Medlemmer.21
Það varð ekki fyrr en 1. október 1919 að gildi tóku í Danmörku réttarfarslög
sem uppfylltu fyrirheit og fyrirmæli stjórnarskrárinnar varðandi dómstóla og
réttarfar, Lov om Rettens Pleje af 11. april 1916 (RPL).22 í 50. gr. var ákvæði
nálega samhljóða nýnefndu frumvarpsákvæði með þeirri einu efnisbreytingu að
ef víkja ætti formanni eða varaformanni sjó- og verslunardómsins tæki forseti
Hæstaréttar ákvörðun þar um ásamt tveimur hæstaréttardómurum.
Samkvæmt gildandi lögum víkur „den særlige Klageret“ dómara frá starfi um
stundarsakir. Þessi dómstóll dæmir einnig á fyrsta dómstigi í málum sem höfðuð
eru af hálfu ákæruvaldsins að tilhlutan dómsmálaráðherra á hendur dómara til
embættismissis, RPL §§ 49 og 50. Kærurétturinn23 er skipaður þrem reglulegum
dómurum, hæstarétttardómara, landsréttardómara og héraðsdómara, til 10 ára
og verður umboð þeirra ekki framlengt. Dómum réttarins verður skotið til
Hæstaréttar. RPL §§ 1 a, stk. 2 og 49, stk. 9. Dómurinn var settur á stofn með
lögum nr. 113 frá 15. mars 1939.
2.3 Álit danskra fræðimanna
G. Svedstrup ritaði grein „Om Grundlovens § 71 og dens Virkninger“ í UfR
árið 1929. Þar segir m.a.:
Ordet „afsættes", der er lidt usædvanligt, synes sprogligt vel nærmest at sigte til
Forbrydelse af Embedet, men enhver tvungen Afskedigelse má dog antages at falde ind
derunder.
Hann minnir á að 0rsted lagði til á ríkisþinginu 1849 að „afskedige“ kæmi í stað
„afsætte“. Ummæli 0rsteds eru svohljóðandi:
I den foreslaaede nye Paragraf er brugt Udtrykket „Dommere kunne ikke afsættes
uden ved Dom“ medens der i § 21 bruges Udtrykket „afskediges“; afsættes bruges
nemiig ikke uden med Hensyn til Embedsmænd, der ved Dom forbryde deres Embede,
og der ligger altsaa en Modsigelse i saaledes for Dommere at bruge et andet Udtryk end
21 Rigsdagstidenden 1901-02, sp. 2105 2106.
22 Smiðshöggið var raunar ekki rekið fyrr en 1936 með nýrri skipan á rannsókn sakamála.
23 Það er með hálfum huga sem ég íslenska þannig nafn dómstólsins, en það á eftir að bera oft á góma
í því sem hér fer á eftir og fellur svo illa að íslensku beygingakerfi óþýtt að þetta hefur orðið
fangaráð.
94