Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 13

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 13
ráð á landi eða ekki. Samkvæmt 1. gr. Svalbarðasamningsins eru Noregi veitt slrk ríkisyfirráð. Ekkert er að finna í samningnum sem leggur bann við því að Noregur taki sér rétt á hafínu utan 4 mílna landhelgi Svalbarða. Sé litið til hins almenna þjóðréttar hafsins, og ákvæða Hafréttarsáttmálans sérstaklega, eiga eyjar, aðrar en klettadrangar, rétt til landhelgi, efnahagslög- sögu og landgrunnslögsögu út að 200 mílna markinu. Niðurstaðan hvað þessa spumingu varðar er því sú að Noregur hefur þjóðréttarlega heimild til að marka sér lögsögu á hafínu og landgrunninu, ef því væri að skipta, utan landhelgi Svalbarða. Aðeins eitt ríki, Sovétríkin, mótmæltu 200 sjómílna fiskverndar- lögsögunni þegar hún var fest í konunglega tilskipun, önnur samningsríki ekki svo vitað sé. Þessi niðurstaða kann að koma mönnum nokkuð á óvart, en ég hygg að í ljósi 1. gr. samningsins hljóti menn að telja hana eðlilega og rökrétta. 6. GEGN ALÞJÓÐALÖGUM Síðari spurningin er hvert sé eðli réttinda Noregs á 200 sjómílna fiskvemdar- svæðinu. Eru þau hin sömu og þau sem ríki njóta almennt innan efnahags- lögsögu sinnar eða em þau að einhverju leyti takmarkaðri vegna ákvæða Svalbarðasamningsins? Þetta er sú spuming sem er í raun kjarni deilunnar um yfirráð Noregs á svæðinu og svarið sker úr um það hvort framferði Norðmanna þar er í samræmi við alþjóðalög eða ekki. Telja verður að svo sé ekki og skulu leidd að því nokkur rök hér á eftir. Rétt er þó fyrst að líta á einstaka þætti málsins. Það fyrsta sem vekur athygli, þegar réttarstaðan er könnuð, er það að fisk- vemdarsvæðið er ekki sett á laggimar með tilvísun í Svalbarðasamninginn og ákvæði hans í 1. gr. um ríkisyfirráð Noregs þar. I fljótu bragði hefði það þó virst eðlilegur og rökréttur framgangsmáti og hin þokkalegasta réttarheimild fyrir útfærslunni, ef svo mætti að orði komast. Hvers vegna var þá ekki sú leið valin. Norsk stjómvöld eða fræðimenn hafa mér vitanlega aldrei gefið á því neina skýringu. Eg er hinsvegar í litlum vafa um að ástæðuna er að finna í jafnræðisákvæði 2. greinar samningsins þar sem fyrir er mælt að allar samningsþjóðirnar skuli njóta sama réttar til fiskveiða við Svalbarða. Jafnvel þótt þar væri árið 1920 aðeins rætt um fiskveiðar í landhelgi hlýtur Norðmönnum að hafa verið fullljóst 1977, þegar tilskipunin var sett, að ef þeir færðu út lögsöguna við eyjarnar í 200 sjómílur á gmndvelli samningsins þá var óhjákvæmilegt að önnur samningsrfki nytu góðs af slíkri útfærslu til jafns við þá sjálfa. Hér varð því að finna aðra lagakróka sem tryggt gætu Norðmönnum einum yfirráð yfír hafinu utan 4 mílna landhelginnar við Svalbarða. Og lögfræðingum í utanríkisráðuneytinu norska varð ekki skotaskuld úr því. í desember árið áður, 1976, höfðu verið sett lög um 200 sjómílna efnahagslögsögu út frá ströndum Noregs. Nú var gripið til þess ráðs að fínna tilskipuninni um fískvemdarsvæðið, mörg hundmð mílur í norðri, stoð í lögum sem aðeins tóku til svæðisins við strendur heimalandsins. Og röksemdirnar voru m.a. þær að samkvæmt orðanna 117

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.