Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 17

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 17
Og loks hefur verið á það bent að eitt meginmarkmið samningsins, sem fram kemur í inngangi hans, sér friðsamleg nýting eyjaklasans. Framferði Norð- manna með stofnun vemdarsvæðisins sem enginn samningsaðila utan einn við- urkennir og miklum deilum hefur valdið geti varla talist vera í samræmi við þennan yfirlýsta tilgang samningsins. 9. TVÍSKINNUNGUR í MÁLFLUTNINGI Þegar litið er á öll þessi atriði sem hér hafa verið rakin hljóta þau að vega nokkuð þungt sem mótvægi gegn hinni norsku lögskýringu að Svalbarðasamningurinn gildi aðeins innan landhelginnar og samningsaðilar, svo sem Island, hafí engin réttindi á vemdarsvæðinu. Þegar betur er að gáð virðist sem Norðmönnum sjálfum sé ljóst að lögskýringar þeirra em nokkuð hæpnar hvað þessi atriði varðar. í greinargerð Fleischers segir hann að norsk stjómvöld hafi „fullan rétt til að taka hagsmuni norskra sjómanna fram yfír hagsmuni annarra á Svalbarða- svæðinu á sama hátt og innan efnahagslögsögu Noregs“. En síðan heldur Fleischer áfram eftir að hafa sagt þetta og segir orðrétt: Norsk stjómvöld hafa samt sem áður ekki beitt fyrir sig þessum skilningi á lögunum og enn hefur ekki verið tekist á um hana í yfirstandandi deilum Norðmanna og Islendinga. Þegar ákveðið var að framfylgja lögunum um norsku efnahagslögsöguna var jafnframt ákveðið að fara hægar í sakimar við Svalbarða. Fyrir því voru tvær ástæður. ... Sú síðari var óskin um að forðast hugsanlegar deilur við önnur ríki um hvernig túlka bæri jafnræðisreglu Svalbarðasamningsins. Það er að segja hvort hún ætti einnig að ná til 200 mflnanna. Og Fleischer heldur áfram á þessari braut og segir: Fiskveiðilögsaga þar sem jafnræðis er gætt, eins og áfram mun verða, er einnig í meginatriðum í samræmi við þá hugsun að jafnræðisreglan í 2. grein Svalbarðasamn- ingsins skuli útfærð þannig að hún taki til hinnar nýju lögsögu. Með þessum ummælum viðurkennir Fleischer í raun, en hann er víðsýnn fræðimaður, að jafnræðisregluna beri að leggja til grundvallar við auðlindanýt- ingu á svæðinu þegar allt kemur til alls. Og síðan spyr hann: Yfir hveiju hafa íslendingar að kvarta þegar Norðmenn gæta þess einmitt að mismuna engum, að hygla ekki eigin sjómönnum heldur aðeins að stjóma veiðunum í samræmi við strangt vísindalegt mat? En því miður reynist stuðningur Fleischers við jafnræðisregluna á ákaflega veikum grunni byggður því nokkru síðar segir hann: Mismiklir kvótar til einstakra landa era því ein af forsendunum fyrir skynsamlegri nýtingu og strandríkjum ber í raun skylda til að standa þannig að málum. 121

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.