Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 28

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 28
í dómi Hæstaréttar sagði, að þegar Mannréttindasáttmáli Evrópu var fullgiltur af íslands hálfu, hefði verið talið, að íslenskar réttarreglur væru í samræmi við hann, eins og sáttmálinn var þá skýrður. Eftir þetta hefðu mörg ákvæði hans verið nánar skýrð við meðferð kærumála hjá Mannréttindanefnd- og Mannréttindadómstól Evrópu. Jafnframt var tekið fram í dóminum, að með fullgildingunni hefði ísland að þjóðarétti gengist undir að hlíta ákvæðum sáttmálans. Þá var einnig vísað til fyrri dóms Hæstaréttar, sem hér að framan hefur verið rakinn, þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að skýra bæri reglur réttarfars um sérstakt hæfi dómara með hliðsjón af sáttmálanum. Auk þessa var rakinn dómur Mannréttindadómstóls Evrópu frá 24. maí 1989 í svokölluðu Hauschildt máli, sem reis milli dansks ríkisborgara og danska ríkisins. Þar var komist að þeini niðurstöðu í hliðstæðu álitaefni, að brotið hefði verið gegn því skilyrði 1. mgr. 6. gr. sáttmálans, að dómstóll virtist óvilhallur. Með tilliti til þessa var staðfestur úrskurður héraðsdómara um að hann viki sæti. Við lögskýringu réttarfarslaga um sérstakt hæfi dómara, ber að hafa hliðsjón af þeirri meginreglu að túlka ber réttarreglur landsréttar í samræmi við reglur þjóðaréttar. Af því leiðir að úrlausnir Mannréttindanefndar- og Mannréttinda- dómstóls Evrópu hafa þýðingu við skýringu reglna um sérstakt hæfi dómara, svo sem jafnframt verður ráðið af framangreindum dómum. Að öðrum kosti er hætt við, að íslenska ríkið verði talið hafa brotið gegn þeim skuldbindingum að þjóðarétti, sem það hefur undirgengist. Hins vegar kemur síður til álita, að úr- lausnir þessar verði taldar til réttarheimilda landsréttar, enda gæti slíkt varla samrýmst 2. gr. laga nr. 62/1994.13 HEIMILDARSKRÁ: Alþingistíðindi Ármann Snævarr: Almenn Iögfræði. Reykjavík 1989. Garðar Gíslason: Eru lög nauðsynleg? Reykjavík 1991. Gaukur Jörundsson: „Um rétt manna samkvæmt 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu til að leggja mál fyrir óháðan og hlutlausan dómstól". Ármannsbók. Afmælisrit helgað Ármanni Snævarr. Reykjavík 1989. 13 Hér hefur verið fjallað um afmarkaðan þátt stærra viðfangsefnis, sem er gildi þjóðaréttar að landsrétti. Um það hefur verið nokkuð fjallað meðal íslenskra fræðimanna. Sjá til dæmis Sigurður Líndal: Inngangur að lögfrœði og Stefán Már Stefánsson: „Um þörf á lögfestingu þjóðréttarsamninga“. Þetta viðfangsefni fjallar Ragnar Aðalsteinsson einnig um í grein sinni „Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar og íslenskur landsréttur“, sem rituð var fyrir lögfestingu Mannréttindasáttmála Evrópu með lögum nr. 62/1994. Þar kemst höfundur að þeirri niður- stöðu, að ákvæði alþjóðlegra mannréttindasamninga, sem hafa verið fullgiltir, séu hluti lands- réttar og ósamþýðanleg ákvæði landslaga verði að víkja. Jafnframt að beita beri reglum Mannréttindasáttmála Evrópu eins og þær hafa verið túlkaðar af Mannréttindanefnd- og Mannréttindadómstói Evrópu. Þessa niðurstöðu sína byggir höfundur einkum á Hrd. 1990 2. Jón Steinar Gunnlaugsson dregur þessa niðurstöðu í efa í grein sinni „Kenningar og raun- veruleiki“. 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.