Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 34

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 34
Ákvæði 34. gr. ESE-samningsins stefnir að sama markmiði. Ákvæðinu er ætlað að stuðla að því að eitt af höfuðmarkmiðum EES-samningsins um sam- ræmda beitingu og túlkun EES-reglna í EFTA-ríkjunum, og raunar á öllu Evrópska efnahagssvæðinu, náist. Hér er því um að ræða hliðstæðu við 177. gr. Rómarsáttmálans. Vaknar því sú spurning hvort og að hve miklu leyti rétt sé að taka mið af dómaframkvæmd EB-dómstólsins varðandi skýringu á 177. gr. Rómarsáttmálans við framkvæmd 34. greinar ESE-samningsins. Reynir þar m.a. á skýringu 1. mgr. 3. gr. ESE-samningsins, en hún er svohljóðandi: Með fyrirvara um þróun dómsúrlausna í framtíðinni ber við framkvæmd og beitingu ákvæða bókana 1 til 4 og ákvæða í gerðum samsvarandi þeim sem skráðar [eru] í I. og II. viðauka við samning þennan, að túlka þau í samræmi við úrskurði dómstóls Evrópubandalaganna sem máli skipta og kveðnir hafa verið upp fyrir undirritunardag EES-samningsins, þó að því tilskildu að ákvæðin séu efnislega samhljóða samsvar- andi reglum stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu og stofnsáttmála Kola- og stál- bandalags Evrópu og gerðum sem samþykktar hafa verið vegna beitingar þessara tveggja sáttmála. í dómi EFTA-dómstólsins í máli E-l/94 (Restamark),7 sem kveðinn var upp 16. desember 1994, reyndi á þýðingu fordæma EB-dómstólsins við túlkun ESE- samningsins. I dóminum er það tekið fram að 1. mgr. 3. gr. ESE-samningsins leggi ekki þá skyldu á herðar EFTA-dómstólnum að taka mið af dómafor- dæmum EB-dómstólsins við skýringar á meginmáli þess samnings. Engu að síður er á því byggt að taka beri mið af röksemdum sem fram hafa komið í úr- lausnum EB-dómstólsins við skýringu á ákvæðum ESE-samningsins. Samkvæmt þessu er við skýringu 34. gr. ESE-samningsins tekið mið af þeim röksemdum sem fram hafa komið hjá EB-dómstólnum við skýringu á 177. gr. Rómarsáttmálans. Áður en vikið verður að frekari skýringum á 34. gr. ESE-samningsins er rétt að benda á að úrræði það sem hér er fjallað um er frábrugðið 177. gr. Rómar- sáttmálans í nokkrum mikilvægum atriðum. / fyrsta lagi felur 34. gr. aðeins í sér heimild fyrir dómstól EFTA-ríkis til að leita eftir ráðgefandi áliti hjá EFTA- dómstólnum. Dómstólum EFTA-ríkja er m.ö.o. aldrei skylt að leita eftir slíku áliti. Aftur á móti gerir 3. mgr. 177. gr. Rómarsáttmálans ráð fyrir að dómstól aðildarríkis sé skylt að leita forúrskurðar EB-dómstólsins ef um er að ræða dómstól sem kveður upp dóma sem ekki er hægt að skjóta til æðra dóms. í öðrum tilfellum er um að ræða heimild, sbr. 2. mgr. 177. gr. í öðru lagi eru álit EFTA-dómstólsins aðeins ráðgefandi fyrir dómstól EFTA-ríkis, á meðan for- úrskurðir EB-dómstólsins eru bindandi, hvort sem um hann er beðið á grund- 7 Dómurinn hefur ekki verið prentaður þegar þetta er ritað. 138
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.