Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 41

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 41
við yfirstjórn tollamála. Þá er einnig lögð áhersla á þann tilgang þessa úrræðis að stuðla að samvinnu milli EFTA-dómstólsins og dómstóla aðildarrrkja í því skyni að vinna að samræmdri túlkun samningsins í einstökum ríkjum. Dóm- urinn ber með sér að EFTA-dómstóllinn er tilbúinn til að ganga nokkuð langt í að skýra dómstólahugtakið þannig að framangreint markmið náist. 4.2.2 Takmarkanir samkvæmt lögum nr. 21/1994 I 3. mgr. 34. gr. ESE-samningsins er kveðið á um rétt EFTA-ríkis til að tak- marka heimild til að leita ráðgefandi álits við dómstóla sem kveða upp úrlausn- ir sem ekki sæta málskoti samkvæmt landslögum. Þetta er eina takmörkunin sem heimiluð er samkvæmt ESE-samningnum. Aðeins Austurríki nýtti sér þessa heimild. Þar í landi var rétturinn til að leita ráðgefandi álits samkvæmt 34. gr. ESE-samningsins takmarkaður við æðri dómstigin. í lögum nr. 21/1994 eru aftur á móti settar reglur sem ekki eiga sér hliðstæðu í öðrum EFTA-rikjum. Lögin eru þannig upp byggð að mælt er fyrir um sér- staka heimild til handa tilteknum dómstólum til að leita álits EFTA-dómstólsins. Nánar er um að ræða héraðsdómstóla (1. mgr. 1. gr.), Hæstarétt íslands (3. gr.) og Félagsdóm (2. gr.).17 Þessi takmörkun er af öðru tagi en sú sem gert er ráð fyrir í 34. gr. ESE-samningsins. Með henni er þegar búið að útiloka Landsdóm frá slfkri álitsumleitan, og ennfremur aðrar þær stofnanir sem ekki teljast til dómstóla samkvæmt íslenskum lögum, en gætu eftir sem áður fullnægt þeim skilyrðum sem EB-dómstóllinn hefur sett í þessu efni við framkvæmd 177. gr. Rómarsáttmálans um forúrskurði og þeim skilyrðum sem EFTA-dómstóllinn hefur sett og á eftir að setja í því efni. Virðist því sem lög nr. 21/1994 feli í sér ríkari takmarkanir á heimildum til að leita álits EFTA-dómstólsins en leiða má af ákvæðum 34. gr. ESE-samningsins. Sú niðurstaða felur jafnframt í sér brot á skuldbindingum íslendinga samkvæmt ESE-samningnum. Nauðsynlegt væri vegna þessa, að sem fyrst yrðu gerðar breytingar á nefndum lögum til sam- ræmis við þær skuldbindingar sem í ESE-samningnum felast. 4.3 Ákvörðun um að óska eftir áliti Aðeins dómurinn sjálfur (nefndin) getur ákveðið að leita álits EFTA-dóm- stólsins. Aðilar máls geta aldrei beint slíkri beiðni til hans. Dómurinn er heldur ekki bundinn af kröfum aðila. Oftar en ekki er það þó annar hvor aðila máls sem á frumkvæði að því að álits er leitað, t.d. með því að setja fram kröfu um það. Það er því á valdi dómsins að meta hvort málið er þannig vaxið og tengsl þess við EES-rétt með þeim hætti, að þörf sé á að leita ráðgefandi álits. Af þessu leiðir einnig, að dómurinn ákveður hvemig þeim spumingum skuli hagað sem lagðar eru fyrir EFTA-dómstólinn. í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 21/1994 segir: 17 Sjá nánar almennar athugasemdir í frumvarpi til laga um öflun álits EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um Evrópska efnahagssvæðið, Alþt. A 1993, bls. 756. 145
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.