Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 47

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 47
Samkvæmt 4. tl. 96. gr. starfsreglnanna getur EFTA-dómstóllinn óskað eftir skýringum frá dómstólnum í aðildarríkinu þar sem beiðnin kemur fram. Tekið er fram að slfk beiðni skuli vera á því tungumáli sem beiðni um álit er rituð á. Þetta þýðir að EFTA-dómstóllinn yrði að setja fram slíkar óskir á íslensku, ef um íslenskan dómstól væri að ræða og beiðni um ráðgefandi álit væri á íslensku. í 3. tl. 27. gr. starfsreglnanna kemur fram að málsmeðferðarskýrsla framsögu- manns skuli vera til reiðu bæði á ensku og því tungumáli sem notað er við við- komandi dómstól eða stofnun. Þá segir í 4. tl. 27. gr., að aðilum máls fyrir dóm- stóli þeim, eða annarri stofnun með dómsvald, sem óskar álits, sé heimilt að ávarpa EFTA-dómstólinn á því tungumáli, sem notað er við málsmeðferðina fyrir þeim dómstóli, eða stofnun, sem í hlut á. Hið sama er um ávörp sem beint er að þessum aðilum. Dómstóllinn sér um að til staðar séu túlkar. Ef aðili hyggst notfæra sér þetta er þess krafist að hann tilkynni um það a.m.k. tveimur vikum áður en munnleg málsmeðferð hefst. Af þessu ákvæði 4. tl. 27. gr. leiðir að aðilar máls fyrir íslenskum dómstóli, sem sendir beiðni, geta flutt mál sitt á íslensku ef þeir telja það henta sér betur. Þá geta þeir ennfremur farið fram á að spurningar dómara verði þýddar á íslensku ef því er að skipta. Til þess að unnt sé að gera nauðsynlegar ráðstafanir varðandi túlkun á ensku þarf viðkomandi að tilkynna um þessa fyrirætlan sína innan tilskilins frests. í 5. tl. 27. gr. kemur síðan fram að álit dómstólsins skuli vera á því tungumáli, sem beiðnin var á og á ensku. Tekið er fram að álitið sé jafngilt frumgagn á báðum tungumálunum. í málsmeðferðarreglunum er ekki tekið sérstaklega fram að greinargerðir og skriflegar athugasemdir frá aðilum geti verið á tungumáli því sem notað er við viðkomandi dómstól. Verður þó að ætla, þegar ákvæði starfsreglnanna sem að þessu lúta eru skoðuð í heild, að það sé heimilt. 5.5 Kostnaður Álit EFTA-dómstólsins er aðilum að kostnaðarlausu. Hitt er ljóst að aðilar, og aðrir sem að málinu koma, geta haft umtalsverðan kostnað af slíkri máls- meðferð, svo sem vegna lögmannsaðstoðar, ferðalaga o.s.frv. Samkvæmt 5. ti. 97. gr. starfsreglnanna er það hlutverk þess dómstóls sem beiðni kemur frá, að kveða á um kostnað sem leiðir af álitsbeiðni. Hér er aðeins átt við þann kostnað sem aðilar málsins hafa af málsmeðferðinni, en ekki kostnað annarra sem ákveðið hafa að leggja fram greinargerðir eða skriflegar athugasemdir og jafn- vel mæta við flutning málsins. Af 5. tl. 97. gr. leiðir að dómstóll sem beðið hefur um álit kveður á um kostnað sem leiðir af álitsbeiðni eins og hvern annan málskostnað. Fer um það eftir almennum reglum á hvorum aðilanum slíkur kostnaður lendir að lokum. í E mgr. 4. gr. laga nr. 21/1994 er að finna heimild til þess að veita þeim aðila gjafsókn sem ekki hefur krafíst álits. Þar segir, að hafi dómstóll ákveðið að leita álits EFTA-dómstólsins, sé rétt að veita þeim aðila, sem ekki hefur krafist þess að álits væri leitað, gjafsókn í þeim þætti málsins. Um skilyrði gjafsóknar gilda 151
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.