Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 51

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 51
flokkaðir með ýmsum hætti, m.a. með tilliti til eignarréttarlegrar stöðu þeirra.1 Að sama skapi hefur hugtakið afréttur verið skilgreint með fleiri en einum hætti, þó svo að leggja megi til grundvallar þá almennu skilgreiningu að afrétt- ur í víðtækustu merkingu sé, hvers konar land utan byggðar, sem er eða hefur verið nýtt til sumarbeitar fyrir sauðfé.2 Agreiningurinn er þó ekki bundinn við afréttina sem slíka, því að vafi hefur einnig risið um réttarstöðu svokallaðra almenninga og raunar fleiri landsvæða, sem liggja utan landfræðilegra marka viðurkenndra eignarlanda. í stuttri grein sem þessari er hvorki tilefni né tök á því að fara nánar út í fræðilega umfjöllun þessu tengda. Ástæða er þó til að vekja athygli á því að það kann að standa til einföldunar við þessa umræðu að leggja af hina fornu greiningu í eignarlönd, afrétti og almenninga og flokka land þess í stað einfaldlega í eignarland í beinni merkingu annarsvegar og land í annarskonar eignarhaldi hinsvegar.3 Enn sem komið er hefur löggjafinn ekki tekið á þeirri eignarréttarlegu óvissu, sem þannig ríkir um stóran hluta landsins. Nokkrir dómar hafa á hinn bóginn gengið, sem að einhverju leyti hafa almenna þýðingu við úrlausn álita- efnisins. Þann 3. nóvember 1994 gekk dómur Hæstaréttar í málinu nr. 247 1994: Ákæruvaldið gegn Hreggviði S. Hendrikssyni og Rúnari Hreggviðssyni. For- sendur og niðurstaða þess máls kunna að skipta nokkru máli í því eignarréttar- lega „púsluspili“ sem hér er við að eiga og því full ástæða til að staldra nokkuð við umrætt mál. 2. DÓMUR HÆSTARÉTTAR FRÁ 3. NÓVEMBER 1994 2.1 Málavextir Tildrög máls þessa voru með þeim hætti, að sunnudaginn 25. október 1992 héldu feðgamir H og R til rjúpnaveiða í Hafrafelli sem er í svokölluðu Geitlandi í Borgarfirði, vestan Langjökuls. Nánar tiltekið liggur Geitland milli Hvítár að norðan, Geitár að vestan og Langjökuls að sunnan og austan. Hafa Hálsa- og 1 Sjá Karl Axelsson: „Um eignarhald á Biskupstungnaafrétti". Afmœlisrit Gizur Bergsteinsson nírœður, Reykjavík 1992, bls. 79-82; Sigurð Líndal: „Eignarréttur á landi og orkulindum", sérprentun úr skýrslu aðalfundar Sambands fsl. rafveitna 1983, bls. 14 og áfram; Þorgeir Örlygsson: „Um eignarhald á landi og náttúruauðlindum“. Afmœlisrit Gauk- ur Jörundsson sextugur, Reykjavík 1994, bls. 568-572. 2 Sjá Gaukur Jörundsson: Eignaréttur, Reykjavík 1982-83, bls. 131; Karl Axelsson, sama rit, bls. 78; Sigurður Líndal. sama rit, bls. 14 og Þorgeir Örlygsson, sama rit, bls. 566. 3 í forsendum dóms Hæstaréttar, Hrd. 1994 117 í málinu: Hreppsnefnd Austur-Eyja- fjallahrepps og fleiri gegn ferðafélaginu Útvist og fl., er hinsvegar að finna nýja flokkun, sem ekki hefur sést áður, þegar rétturinn talar um mörk heimalanda, afrétta og hálendis. Sjá nánar um þetta, Þorgeir Örlygsson, sama rit, bls. 550. 155
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.