Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 55

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 55
Segja má að nokkrar línur hafi verið lagðar hér að lútandi í dómi Hrd. 1955 108, Landmannaafréttardóminum fyrri, sem svo hefur verið kallaður. Þar hafn- aði Hæstiréttur því að aldalöng samnot býla í nærliggjandi hreppum á tilteknu landsvæði (óbyggðu fjalllendi) til sumarbeitar, veiða og hugsanlegra annarra þrengri nota, væri nægur grundvöllur beins eignarréttartilkalls þeirra eða við- komandi hreppsfélaga. Var og komist að þeirri niðurstöðu að krefjendur viður- kenningar beins eignarréttar hefðu ekki náð að sanna tilvist slrks réttar, hvorki fyrir nám, löggerninga, hefð né með öðrum hœtti. í svokölluðu Nýjabæjarafréttarmáli, Hrd. 1969 510 er krafan um áreiðan- leika eða þýðingu löggemings, í þessu sambandi, mótuð nánar. Deilt var um eignarrétt að landsvæði, sem náði allt frá Austurdal í Skagafirði, austur undir vatnaskil norðan Sprengisands. í málinu lá m.a. fyrir afsal í frumriti frá 1464, sem tók til hins umþrætta landsvæðis. Það taldi Hæstiréttur hinsvegar ekki full- nægjandi eignarheimild og hafnaði kröfum aðila um viðurkenningu beins eignarréttar. Var byggt á því að hvorugur málsaðila hefði fært fram gögn fyrir fullkominni eignatöku, hvorki að fornu eða nýju, á hinu umþrætta landsvæði. Yfírlýsingar í afsölum, sem eigi styddust við önnur gögn, væru ekki nægur grundvöllur eignarréttartilkalls til örœfalandsvæðis þessa, eins og það var orð- að í forsendum réttarins. Tveimur árum síðar eða í Hrd. 1971 1137 lá á hinn bóginn fyrir Hæstarétti að taka afstöðu til eignarréttarlegrar þýðingar máldaga, vísitasía og lögfestna kirknanna í Reykholti og á Þingvöllum, en í málinu var m.a. deilt um eignarhald á afréttarlandi Lunddælinga austan Reyðarvatns.8 Leiddi hreppurinn heimildir sínar til umrædds landsvæðis frá fyrmefndum kirkjum. Segir í forsendum Hæstaréttar að af umræddum gögnum yrði ekki ráðið hvort lönd Lundarreykja- dalshrepps á framangreindu svæði væru háð beinum eignarrétti eða aðeins afréttareign. Var málið að öðru leyti ekki talið fullreifað um þetta atriði.9 í sama máli var komist að ótvíræðri jákvæðri niðurstöðu um eignarréttartilkall Anda- kílshrepps til afréttarlands síns Gullberastaðatungu, en það landsvæði hafði áður verið hluti af bújörðinni Gullberastöðum. Ennfremur kemur til skoðunar í þessu sambandi Hrd. 1981 1584, Land- mannaafréttardómurinn síðari, sem svo hefur stundum verið nefndur. I því máli var á ný tekist á um eignarrétt að umræddum Landmannafrétti, sbr. Hrd. 1955 108. Fyrri niðurstaða um eignarréttartilkall hreppsfélaganna og jarðeigenda var 8 Um sama mál var fjallað í frávísunardómi Hæstaréttar frá 1967, Hrd. 1967 916. 9 í Lyfrd. (yngri) V 327 hafði verið komist að hliðstæðri niðurstöðu, en þar var því hafnað að eignarréttartilkall Hjarðarholtskirkju til landsvæðisins Hellistungna, ofan Norðurárdals, yrði reist á vísitasíum kirkjunnar og lögfestum, enda væri þar um að ræða: skrásetning þess, er umráðamenn eða eigendur kirkjunnar hafa einhliða viljað telja eign hennar. Sjá hinsveg- ar aðra niðurstöðu í Lyfrd. (eldri) VII 223, varðandi afréttarlandið Bleiksmýrardal, austan Fnjóskár. 159

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.