Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 60

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 60
Magnússonar og Páls Vídalín, frá því skömmu eftir aldamótin 1700, segir að ekki hafi verið byggð í Geitlandi í manna minnum.21 Hvað heimildir um sauð- fjárbeit á svæðinu varðar, þá er til dómur frá 1596, þar sem tekið er á upprekstri tiltekinna aðila í Geitland, sem Reykholtskirkjumenn töldu óheimilan, enda í óþökk þeirra. Er kveðið á um það í niðurstöðu dómsins að Geitland sé eign Reykholtskirkju, eins og það er beinlínis orðað, en hinsvegar er í dómnum við- urkennt ítak annars aðila.22 í Jarðabók Áma Magnússonar og Páls Vídalín segir að Reykholtsstaður brúki landið til upprekstrar fyrir lömb og geldfé. Er afrétt- artollur þá eitt lamb af hveijum rekstri.23 í yngri heimildum, frásögn Kristleifs Þorsteinssonar frá Stóra Kroppi, kemur fram að Borgfirðingar nýti Geitland sem afrétt, bæði fyrir lömb og geldfé, þótt sltkur upprekstur virðist hafa lagst af á seinni hluta 19. aldar. Segir Kristleifur að leiga Reykholtskirkju fyrir Geitland hafi verið veturgömul gimbur.24 Þrátt fyrir að fyrirliggjandi gögn bendi þannig til þess að landnýting í Geitlandi hafi að mestu þróast yfir í upprekstur og beit, þá liggja þó fyrir heimildir um fjölþættari nýtingu Geitlands. í Geitlandi var kvarnsteinanáma, sem nýtt var fram undir lok 19. aldar, þar var mikið og gott fjallagrasaland, einiber vom tínd til brennivínsgerðar, auk fjölþættari nýtingar.25 Ekki liggja fyrir glöggar upplýsingar um það, hvernig háttað hefur verið greiðslu eða endurgjaldi fyrir önnur afnot Geitlands en beitina. Raunar virðist Geitland að einhverju leyti hafa verið nýtt frá Húsafelli, en þá verður að líta til þess að jörðin Húsafell var eign Reykholtskirkju á síðari tímum. Ekki er gefið að heimildir um framangreind afnot eða önnur afnot af Geitlandi breyti hinu eignarréttarlega mati á svæðinu, þó svo telja verði að slíkar heimildir styrki sjónarmið um víðtækara eignarhald Reykholtskirkju. Þó á það aðeins við ef kirkj- an hefur talið slíkt til eignarréttinda sinna og nýtingin farið fram í skjóli eða sam- kvæmt heimildum forráðamanna hennar. Ekki em nein tök á því að kanna þetta atriði nánar, enda ekki verkefni þessarar greinar að komast að neinni endanlegri, efnislegri niðurstöðu um eignarhald á Geitlandi, heldur eingöngu að kanna þýð- ingu umrædds hæstaréttardóms fyrir almennar sönnunarkröfur á þessu sviði. 21 Árni Magnússon og Páll Vídalín: Jarðabók 4. bindi, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, Kaup- mannahöfn 1925 og 1927, bls. 258. 22 Alþingisbœkur íslands, 3. bindi, Reykjavík 1917, bls. 420-421. 23 Árni Magnússon og Páll Vídalín, sama rit, bls. 231 og 258. Raunar er tilgreining Jarða- bókarinnar á stöðu Reykholts nokkuð misvísandi. í umfjöllun um Reykholtsstað segir ein- göngu að staðurinn eigi geidfjárupprekstur og afrétt í Geitlandi og heimili þangað upprekstur gegn greiðslu afréttartolls, sbr. bls. 231. í sjálfstæðri umfjöllun um Geitland segir beinlínis að iandið eigi Reykholtsstaður og nýti til upprekstrar, sbr. bls. 258. 24 Kristleifur Þorsteinsson, sama rit, bls. 15. 25 Kristleifur Þorsteinsson, sama rit, bls. 16-22. Um Geitland, landshagi og landsnytjar sjá ennfremur, Harald Sigurðsson: „Borgarfjarðarsýsla norðan Skarðsheiðar". Árbók Ferða- félags íslands 1954, bls. 94-95 og Þorstein Þorsteinsson: „Húsafell, Geitland, Kalmanns- tunga, Hallmundarhraun“. Árbók Ferðafélags íslands 1988, bls. 36-40. 164

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.