Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 11

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 11
Aðeins bætur til barna eru staðlaðar. Lögin hafa það að markmiði að bæta vinnutekjutap að fullu. Þau bæta einnig framtíðarútgjöld hins slasaða vegna af- leiðinga lrkamstjóns. Meginreglan er eingreiðsla en hægt er að víkja frá henni og greiða bæturnar sem lífeyri á tilteknu árabili. Reglur sænsku skaðabótalaganna eru mjög líkar hinum norsku. Á þeim er þó sá grundvallarmunur að skaðabætur í Svíþjóð eru greiddar sem árlegur lífeyrir. Þar í landi er því hvorki þörf fyrir margföldunarstuðul eins og í Danmörku eða útreikning á eingreiðslu eins og í Noregi. Skaðabætumar eru mismunur árs- launa fyrir slysið og hverra árslauna eftir slysið og greiddar út árlega. Finnsku lagareglumar eru mjög líkar hinum sænsku. 5.4 Fjárhæð skaðabóta á Norðurlöndum Löggjöfina rná líka bera saman á þann hátt að athuga hverjar bótagreiðsl- urnar em í löndunum fyrir sams konar örorku. Á bls. 54-59 í frumvarpinu er þetta gert, þó er Noregi og Finnlandi sleppt. Samanburðurinn er að auki mjög ófullkominn og á köflum villandi. Til dæmis má nefna að mánaðarlaun eru jafn- há í öllum dæmunum, þrátt fyrir þá staðreynd að laun í Svíþjóð og Danmörku eru almennt 50-60% hærri en á Islandi. Þá er erfitt að bera saman bótagreiðslur fyrir varanlega örorku í Svíþjóð og hinum löndunum tveimur því að í Svíþjóð er greiddur árlegur lífeyrir en ekki eingreiðsla. Ekki er heldur í þessum samanburði gerð nein grein fyrir áhrifum skatta á fjárhæð skaðabóta, ekkert fjallað um bætur almannatrygginga, lífeyrissjóða og eftirlaun í löndunum þremur. Heldur ekki vexti og verðbólgu en allt þetta skiptir miklu máli þegar fjallað er um fjárhæð skaðabóta fyrir framtíðartekjutap. Þá er íslenskur vinnumarkaður um margt ólíkur dönskum, fleiri launþegar hér ófaglærðir, fólk byrjar launavinnu fyrr en þar og mun meiri hreyfing er á fólki milli starfa. I samanburði á skaðabótum í 20 EB- og EFTA-ríkjum hefur hins vegar kom- ið fram að skaðabætur fyrir líkamstjón í Danmörku eru með því lægsta sem þekkist í Evrópu þrátt fyrir að almenn laun í Danmörku séu með þeim hæstu.1 5.5 Umsagnir um frumvarpið Frumvarpið var sent nokkrum aðilum til umsagnar og bárust allmargar slíkar. Helst voru gerðar athugasemdir við margföldunarstuðul 6. gr. en hann var 6 og það ákvæði 3. mgr. 5. gr. að greiða ekki bætur fyrir varanlega örorku ef hún næði ekki 15%. Leiddu þessar athugasemdir m.a. til þess að frumvarpið varð ekki útrætt á þinginu. 1 Sjá Gestur Jónsson og Gunnlaugur Claessen: „Endurskoðun skaðabótalaga". Tímarit lögfræð- inga, 4. hefti 1997, bls. 257. 179
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.