Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 14
Þessi breyting er ekki rökstudd á annan hátt en þann að hér sé dregið mjög úr stöðlun bóta vegna ábendinga þar að lútandi í umsögnum, sjá bls. 36 í frum- varpinu. Hvers vegna lækkunin er þessi en ekki einhver önnur er ekki útskýrt. Þessi breyting hlýtur að byggjast á útreikningi tryggingastærðfræðings þótt enginn slíkur fylgi frumvarpinu. Breytingin leiðir hins vegar til þess að bætur samkvæmt lögunum til þeirra sem slasast á efri árum eru mun lægri en samkvæmt eldra frumvarpinu þrátt fyrir hækkun margföldunarstuðuls úr 6 í 7,5. Slíkt var ekki hugmynd þeirra umsagnaraðila sem höfðu gagnrýnt eldra frum- varpið og lágan margföldunarstuðul þess. I umfjöllun á bls. 36 í frumvarpinu er sagt að með breytingunum hækki örorkubætur eftir því sem tjónþoli er yngri. Með hliðsjón af því að í 1. mgr. 9. gr. felst lækkunarregla er réttara að segja að bætur lækki eftir því sem tjónþoli er eldri. 6.4 Umsagnir um frumvarpið Aftur bárust margar umsagnir um frumvarpið. Lögmannafélag Islands gagn- rýndi enn reiknireglu 6. gr., tekjuviðmiðun 7. gr. og þá miklu mismunun slas- aðra sem 8. gr. leiðir af sér. Neytendasamtökin tóku undir þessa gagnrýni. Læknafélag íslands sagði mat á líkamstjóni ávallt hafa verið og verða læknisfræðilegt og taldi erfitt að greina á milli líkamlegs áverka og skerðingar á vinnugetu. Um þetta segir orðrétt: „Það hefur öllum reynst erfitt í eitt skipti fyrir öll að greina alfarið í sundur líkama og sál“. Þá gagnrýnir stjórn Læknafélagsins harðlega 10. grein frumvarpsins og telur örorkunefnd „óþarft fyrirbrigði“. Orðrétt segir í umsögninni: Hið fjárhagslega mat er hluti af læknisfræðilegu örorkumati, undirþáttur en ekki sjálfstæður matshluti. Örorkunefnd er því óþörf og það hlutverk hennar m.a. að semja örorkustigstöflur og miskastigstöflur eru einnig óþarfar (sic). Slíkar töflur eru til. Þær hafa verið gerðar af þeim sem til þess hafa kunnáttu og þær munu áfram verða þróaðar og endurmetnar af slíkum aðilum. Tilkoma lögfræðings inn í svo- nefnda örorkunefnd þjónar engum skynsamlegum tilgangi og lögfræðingar hafa enga faglega þekkingu á örorkumati og þeir eru af eðlilegum ástæðum hvorki betur til þess fallnir eða ver eftir atvikum að reikna út augljóst fjárhagslegt tjón sem verður miðað við skerðingu vinnugetu. Það út af fyrir sig getur hver sem er. Sérstök athygli er vakin á þessum orðum læknafélagsins vegna umfjöllunar síðar um störf örorkunefndar. Einnig varar félagið við stöðlun bóta og lækkunarreglum frumvarpsins og telur hefðbundið örorkumat nákvæmari mælikvarða á tekjutap. Jón Erlingur Þorláksson tryggingafræðingur sendi allsherjarnefnd ítarlegar og vel rökstuddar athugasemdir sem báru þess merki að hann hafði grandskoð- að bæði viðfangsefnið og frumvarpið. M.a. hafði hann kynnt sér skrif dönsku 182
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.