Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 19
frumvarpinu en hinu fyrra, kveðið er á um skipan varamanna, hæfi nefnd-
armanna og heimild þeirra til að kveðja lækna og aðra sérfræðinga til starfa
fyrir nefndina.
Oljóst er samkvæmt íslenska frumvarpinu hvort örorkunefnd er ætlað að vera
nokkurs konar málskots- eða úrskurðaraðili líkt og Arbejdsskadestyrelsen.
Til þess bendir orðalagið í athugasemdum með 4. grein „bera ágreiningsefni
undir örorkunefnd“ og við 10. grein „mjög mörgum málum verði skotið til ör-
orkunefndar“. Texti lagagreinarinnar „óskað álits um ákvörðun" bendir einnig
til þess að fyrir liggi ákvörðun sem bera megi undir nefndina. I gagnstæða átt
benda athugasemdir við 10. grein „einn aðili“ annist mat á varanlegri örorku og
„örorkunefnd verði falið að meta örorku“. Við túlkun þessa kann að skipta máli
fyrrnefnt orð „sp0rgsmál“ sem ekki er í íslenska textanum. Þetta skiptir þó litlu
máli fram að þessu því að íslensku vátryggingafélögin hafa sammælst um að
vísa öllum skaðabótamálum þar sem reynir á mat á varanlegum miska og ör-
orku til örorkunefndar.
7.2 Töflur um miskastig. 3. mgr. 10. gr.
í 3. mgr. 10. grein skaðabótalaga segir: „Örorkunefnd skal semja töflur um
miskastig“. I athugasemdum við greinina er ekkert fjallað nánar um þessa
ákvörðun og hún því hvorki útskýrð né rökstudd þar. I athugasemdum við 4.
grein laganna er hins vegar um þetta fjallað, sjá bls. 29-30 í frumvarpinu en þar
segir:
Akvörðun bótafjárhæðar fer fram á grundvelli miskastigs. Örorkunefnd, sbr. 10. gr.,
skal semja töflur þar sem algengustu tegundir varanlegs miska eru látnar jafngilda
tilteknum hundraðshlutum hliðstætt því sem gerist í örorkutöflum sem nú eru
notaðar við örorkumat í skaðabótamáíum og slysatryggingum. Við gerð tafln-
anna skal lagt til grundvallar að tiltekinn varanlegur miski bitni jafnþungt á hverjum
þeim sem fyrir honum verður þannig að sami áverki eða sams konar líkamsspjöll
leiði að jafnaði til sama miskastigs. Töflurnar eiga því að sýna „læknisfræðilega“
orkuskerðingu eða miska en ekki skerðingu á getu til að afla tekna. (auðk. greinar-
höf.)
Af þessum orðum og umfjöllun um miskahugtakið í lögunum og frum-
varpinu má ráða, að hugtakið miski er hið sama og áður hafði verið nefnt var-
anleg örorka, stundum kallað læknisfræðileg örorka, eins og gert er í frum-
varpinu.
Um áratuga skeið hafa verið til töflur um örorkustig, t.d. norrænar töflur,
töflur sem hafa „orðið til með samvinnu læknisfræðilegra sérfræðinga á sviði
örorkumats“ eins og segir á bls. 2 í fyrrnefndri álitsgerð Læknafélags íslands
frá 19. apríl 1993. Það eru sömu töflumar og nefndar eru í frumvarpinu til þess
ætlaðar að meta hið sama og töflur um miskastig samkvæmt skaðabótalögunum.
Nú vaknar óhjákvæmilega spurning, reyndar fleiri en ein.
187