Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Side 23
í umsögn Sambands íslenskra tryggingafélaga til allsherjarnefndar Alþingis,
dags. 24.3.1993, bls. 3, kemur þessi skoðun enn fram:
Hér á landi er hins vegar læknisfræðilegt mat lagt til grundvallar við mat á fjártjóni.
Verður að segjast eins og er, að nokkrir læknar hafa verið afar ósínkir að gefa út slík
möt. Hefur þá iðulega lítt verið hirt um að kanna raunverulegar afleiðingar áverkans,
t.d. hvort viðhlítandi læknisfræðileg meðferð í hæfilegan tíma eftir slys geti dregið
úr afleiðingum tjónsatburðarins, og jafnvel hvort varanlegar afleiðingar verði yfir-
leitt nokkrar.
Og síðar á sömu síðu segir:
Hjá S.I.T. var því fyrir nokkru tekið saman yfirlit um sjónarmið íslenskra lækna, sem
að undanförnu hafa birst í fræðiritum og víðar varðandi þessi mál. Sýnir sú saman-
tekt glögglega að frá sjónarhóli sérfróðra og óvilhallra lækna, sem ekki eiga fjárhags-
legra hagsmuna að gæta, er ríkjandi ástand með öllu óþolandi.
Samantektin fylgir svo umsögn S.Í.T. og hafði reyndar áður borist allsherjar-
nefnd með bréfi dags. 16.2.1993.
Uppistaðan í samantektinni er grein Gísla Einarssonar læknis „Nokkur sjón-
armið læknis varðandi læknisfræðilegt örorkumat“ sem Tryggingaskólinn,
starfræktur af S.Í.T., gaf út árið 1992. Greinin var lögð fram sem dómskjal í
nokkrum málum, „verklagsmálum“. Annar af þeim sérfróðu og óvilhöllu
læknum sem þarna er vitnað tvívegis í til stuðnings fyrrnefndum sjónarmiðum
S.Í.T. er Brynjólfur Mogensen. S.Í.T. gat auðvitað ekki um skoðanir annarra
virtra íslenskra lækna sem hafa aðrar skoðanir á þessum áverkum og afleiðing-
um þeirra. Dæmi um það eru tvær greinar í Félagsmiðli íslenskra sjúkraþjálfara,
2. tbl. 1993. Önnur er eftir Halldór Jónsson jr., dr. med. „Whiplash“ áverki!
Hugarburður eða raunveruleiki? og hin eftir Torfa Magnússon lækni, Um lang-
vinnar afleiðingar hálshnykks. Raunverulegur áverki eða óvænt happ?
Bæði Torfi og Halldór eru þeirrar skoðunar að afleiðingar hálshnykks séu oft
mjög alvarlegar, og mjög erfitt sé að greina þá hlutlægt. Þeir styðja niðurstöður
sínar rökum og vitna í erlend sérfræðirit og rannsóknir máli sínu til stuðnings,
m.a. mjög athyglisverða sænska rannsókn.
Halldór Jónsson lýsir henni svo á bls. 13:
Eftirfarandi myndir eru frá rannsóknarverkefni sem gert var við Akademiska
sjúkrahúsið í Uppsölum í Svíþjóð af greinarhöfundi í samvinnu við Dr. Gunillu Bring
hjá Réttarlæknisstofnuninni í Umeá. Um er að ræða einstaklinga sem létust nánast
samstundis af völdum höfuðáverka eftir bílslys. Við krufninguna voru hálshryggirnir
frystir sem þurrís í líkunum áður en þeir vom teknir út, þannig að ekki varð frekari
röskun á vefjunum....
í Uppsölum var síðan framkvæmd frystiheflun á þeim. Eftir hvem millimetra sem
var heflaður burt var tekin mynd af yfirborði hálshryggjarins. Héma eru mjög ein-
191