Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Page 26

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Page 26
7.7 Nágrannalönd Að lækna greini á um hvemig meta skuli miska er ekki einskorðað við Island og svo getur læknana líka greint á um hvernig meta skuli varanlega örorku. Mismunandi skoðanir og „skólar“ em í flestum löndum og deilur hafa staðið um J)etta milli lækna bæði í Noregi og Danmörku. Á bls. 107 í fyrrnefndri úttekt á skaðabótum fyrir líkamstjón í Noregi, NOU 1994:20, segir nefnd prófessors Peter Lpdrup: Utvalget er kjent med at det i praksis kan være uenighet blant enkelte leger nár det gjelder vurderingen av ársakssammenheng og/eller fastsettelsen av medisinsk invaliditet og ervervsmessig ufprhet. Dette medfprer at det lett oppstár konflikt mellom skadelidte og skadevolder, i praksis et forsikringsselskap, om valg av lege som skal vurdere disse spprsmál. Nefndin ræðir svo hvaða áhrif þetta hefur, hvor aðili leiti álits sérfróðs læknis, deilur standi um val meðdómsmanna o.s.frv. og nefnir að mismunandi skoðanir læknanna séu mest áberandi varðandi hálshnykksáverka. Sömu deilur haf verið í Danmörku og er skemmst að minnast blaðaskrifa í Politiken haustið 1997 sem leiddu m.a. til fyrirspurna og umræðna á danska þinginu. Kveikjan að umræðunni var gagnrýni dansks landsréttardómara, Holger Kallehauge, þess efnis að dönsku vátryggingafélögin veldu þá lækna til að meta örorku fólks sem álitu ákveðin slys og áverka ekki alvarlegs eðlis. Tæki örorkumat þeirra mið af þessum skoðunum og væri þar af leiðandi lægra en annarra lækna. 7.8 Alyktanir - niðurstöður Með umfjölluninni hér að framan er ekki verið að gera upp á milli þeirra skoðana sem einstakir læknar hafa og ekki heldur að gagnrýna skoðanir „S.Í.T. læknanna“ á tilteknum áverkum. Þeir eru frjálsir að skoðunum sínum ná- kvæmlega á sama hátt og aðrir íslendingar, þ.m.t. höfundur. Þeim er líka frjálst að halda því fram að hálshnykksáverkum hafi fjölgað óeðlilega mikið á Islandi, tala um faraldur í því efni, telja aðra höfuðorsök fjölgunarinnar rýmri bótarétt slasaðra sem og „að hlutfallslega rífleg greiðsla vegna slíkra áverka“ hér á ís- landi miðað við hin Norðurlöndin valdi því að þeir (áverkanir) „skili sér betur“. Ályktanir þessar eru reyndar ekki mjög vísindalegar eða vel rökstuddar sérstaklega ekki þegar í ljós kemur að hálshnykksáverkum á íslandi fjölgar ekki hlutfallslega meira en í nágrannalöndum okkar. Dæmi um það er að finna í NOU 1994:20 á bls. 82-83 þar sem nefnd er sú staðreynd að hálshnykksáverkum hefur fjölgað mjög mikið í Noregi til ársins 1993 frá því að vera nær óþekktir um 1980. En norska nefndin reynir að finna ástæðu þessa og tekst það líklega. Þótt umferðarslysum hafi aðeins fjölgað lítillega á tímabilinu hefur aftan- ákeyrslum fjölgað mjög mikið og þær eru ein helsta orsök hálshnykks eins og kunnugt er. 194

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.