Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 61

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 61
lega óbreytt gæti verið unnt að bera því við að neikvætt félagafrelsi væri á eng- an hátt verndað hér á landi.9 2.3.1 Ríkari vernd neikvæðs félagafrelsis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. stjskr. en 11. gr. MSE Með setningu ákvæðis um að engan megi skylda til aðildar að félagi, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 74. gr. stjskr., gekk íslenski löggjafinn hins vegar lengra í vemd neikvæðs félagafrelsis en mannréttindadómstóllinn hefur gert hingað til. Rétt- inum til að standa utan félaga er gert jafn hátt undir höfði og réttinum til að stofna og ganga í félög samkvæmt 1. mgr. 74. gr. stjskr. Af þeim dómum mann- réttindadómstólsins sem voru nefndir hér að framan verður ráðið að það er eðli þvingunarinnar til að eiga aðild að félagi hverju sinni sem ræður úrslitum um það hvort hún verður talin andstæð 11. gr. MSE og þá með hliðsjón af skoðana- og tjáningarfrelsi. I íslenska leigubílstjóramálinu var það ekki lögmælt skylda til aðildar að Frama ein og sér sem braut gegn kjarna félagafrelsis 11. gr. MSE heldur mat dómstóllinn sérstaklega umfang þvingunarinnar sem fólst í félagsskyldunni fyrir kæranda. Þvingunin sem fólst í því að ganga annaðhvort í félagið eða missa atvinnuleyfi sitt var talin brjóta gegn 11. gr. MSE auk þess sem félagsaðildin var andstæð skoðunum hans. Skýlaust bann 1. málsl. 2. mgr. 74. gr. stjskr. við skylduaðild að félögum veitir hins vegar ekki svigrúm til að meta lögmæti aðildarskyldu að félagi með sama hætti og mannréttindadóm- stóllinn hefur gert við skýringar á 11. gr. MSE. Neikvætt félagafrelsi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. stjskr. er ekki takmarkað við félög sem brjóta gegn trú-, skoðana- og tjáningarfrelsi eða skerða atvinnufrelsi. Menn eiga rétt á að standa utan hvers konar félaga nema að uppfylltum ströngum skilyrðum 2. málsl. 2. mgr. 74. gr. stjskr. en samkvæmt því er löggjafanum veitt heimild til að kveða á um skyldu til aðildar að félagi ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt lögmæltu hlut- verki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra. 2.3.2 Ákvæði 2. mgr. 74. gr. stjskr. tekur einnig til einkaréttar I frumvarpi að stjórnarskipunarlögum nr. 97/1995 er í athugasemdum við 12. gr. bent á að í ákvæðinu sé ekki vikið að þeirri aðstöðu hvort t.d. tveir menn geti með samningi sín á milli skyldað þriðja mann með óbeinum hætti til að ganga í félag eða beitt hann á annan hátt þrýstingi til þess.10 Vegna umræðna um áhrif ákvæðisins á forgangsréttarákvæði kjarasamninga er áréttað í áliti stjórnarskrár- nefndar um frumvarpið að með ákvæðinu sé ekki kveðið á um það sem menn séu skyldaðir til að gera á grundvelli frjálsra samninga, þ.á m. kjarasamninga. í orðalagi ákvæðisins felist að engan megi skylda til aðildar að félagi með lög- um eða hvers kyns stjómvaldsákvörðunum. Nefndin telur sérstaka ástæðu til að 9 Alþt. 1994, A-deild, bls. 2107. 10 Alþt. 1994, A-deild, bls. 2108. 229
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.