Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Side 75

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Side 75
að vera því til fyrirstöðu að skylda menn til aðildar að félagi og að slík skylda myndi sennilega ekki brjóta gegn 11. gr. MSE. Hins vegar segir svo: „Gagnstæð niðurstaða er þó ekki alveg útilokuð þegar það er virt að unnt er að koma við eftirliti með lögmönnum án þess að félag þeirra þurfi nálægt því að koma...“ og enn fremur: „Því verður augljóslega ekki haldið fram með gildum rökum að skilyrði stjórnarskrár séu eftir setningu laga nr. 97/1995 uppfyllt í hvívetna til að skylda megi lögmenn til að vera í Lögmannafélagi Islands í óbreyttri mynd“.31 5.2 Áfram skylduaðild en félagið svipt agavaldi Grundvallarbreytingar voru gerðar á frumvarpinu í meðförum Alþingis eftir að dómur Hæstaréttar í lögmannafélagsmálinu gekk. Allsherjarnefnd lagði til að lögmönnum yrði eftir sem áður gert skylt að eiga aðild að lögmannafélaginu, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Með lögum nr. 77/1998 er starfsemi félagsins lög- ákveðin og það skal ekki hafa með höndum aðra starfsemi en þá sem sérstaklega er mælt fyrir um í lögunum, sbr. 2. mgr. 3. gr. laganna. Samkvæmt 5. mgr. 3. gr. er félaginu þó heimilt að starfrækja sérstakar félagsdeildir í öðru skyni en lögin kveða á um, eina eða fleiri, sem lögmönnum er frjálst að ákveða hvort þeir eigi aðild að. Fjárhag slíkra deilda á að aðgreina frá fjárhag félagsins. Hlutverk lögmannafélagsins er samkvæmt 5. gr. laganna að vera í forsvari fyrir lögmenn gagnvart dómstólum og stjómvöldum um þau málefni sem stétt þeirra varða, setja siðareglur fyrir lögmenn og að stuðla að því að sérhver sem þarfn- ast aðstoðar lögmanns fái notið hennar. Auk þessara verkefna er félaginu falið eftirlit með því að lögmenn uppfylli ávallt skilyrði fyrir lögmannsréttindum, sbr. 13. gr., veita undanþágur frá skilyrðum 19. gr. um skyldu lögmanna til að hafa opna skrifstofu og því skilyrði að einungis lögmenn reki félög um lög- mannsskrifstofu, auk þess sem félagið skal gera tillögur áður en dómsmálaráð- herra setur reglur um nánar tiltekin málefni og gefa umsagnir til dómsmála- ráðherra sbr. 23,- 25. gr laganna. Það nýmæli er í lögunum að Iögmannafélagið er svipt agavaldi yfir lög- mönnum og úrskurðarvaldi um endurgjald fyrir þjónustu þeirra og þessi verk- efni falin svokallaðri úrskurðarnefnd Iögmanna sem skal starfa „í tengslum við Lögmannafélag íslands", eins og segir í 2. mgr. 3. gr. laganna, en sam- kvæmt 2. mgr. 27. gr. laganna getur nefndin fundið að vinnubrögðum eða hátt- semi lögmanns eða veitt honum viðvörun eða áminningu auk þess sem hún getur lagt til við dómsmálaráðherra að lögmaður verði sviptur lögmannsrétt- indum, telji hún hann hafa brotið gegn lögum eða siðareglum í störfum sínum. Auk þess er unnt að leggja ágreining um endurgjald lögmanns fyrir nefndina, sbr. 26. gr. laganna. Urskurðamefndin skal skipuð fimm mönnum, tveimur kosnum af lögmannafélaginu eftir ákvæðum samþykkta þess, einum tilnefndum 31 Frumvaip til laga um lögmenn, 122. löggjafarþing 1997-98, þskj. 57, bls. 12-13. 243

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.