Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Side 7
Björn Bjarnason lauk embœttisprófi frá lagadeild Háskóla
Islands árið 1971. Hann var útgáfustjóri Almenna bóka-
félagsins árin 1971 til 1974, deildarstjóri og síðar skrif-
stofustjóri íforsœtisráðuneytinu árin 1974 til 1979, blaða-
maður og síðar aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins árin
1979 til 1991 en hefur verið alþingismaður frá þeim tíma.
Björn hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur frá 25. maí
2002. Björn var menntamálaráðherra árin 1995 til 2002 og
hefur verið dóms- og kirkjumálaráðherra frá 23. maí 2003.
Bjöm Bjamason:
MANNRÉTTINDASÁTTMÁLI EVRÓPU 50 ÁRA1
It is a great pleasure and honour to welcome Mr. Luzius Wildhaber, the Presi-
dent of the European Court of Human Rights, here in Iceland. The Honourable
Judge is the first President of the Court to visit Iceland in his official capacity.
We recognize the importance of the Court for all Europeans and know it has a
special role to play for those nations who have become members of the Council
of Europe since the collapse of the communist system. It will be interesting to
here your views, Mr. President, on the obligations of the member States in the
Convention System. All states will certainly treat these obligations with the
respect they deserve.
Góðir áheyrendur!
Við komum hér saman til að ræða Mannréttindasáttmála Evrópu og áhrif hans
á íslenskan rétt. Er fagnaðarefni, að Lögfræðingafélag íslands og Mannréttinda-
stofnun Háskóla íslands skuli hafa boðað til þessa málþings í tilefni af því, að
hinn 3. september síðastliðinn voru 50 ár liðin frá gildistöku mannréttindasátt-
málans. Vil ég í upphafi máls míns óska fundarboðendum til hamingju með
framtakið og hve vel hefur til tekist við val á fyrirlesurum. Er ég ekki í nokkrum
vafa um, að efni héðan af málþinginu mun nýtast vel til aukins skilnings á gildi
og túlkun sáttmálans.
Þegar Islendingar fullgiltu mannréttindasáttmálann, voru ekki gerðar neinar
breytingar á íslenskum lögum. Bjarni Benediktsson, þáverandi dómsmálaráð-
1 Ávarp haldið á málþingi Lögfræðingafélags fslands og Mannréttindastofnunar Háskóia íslands
26. september 2003.
341