Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Page 13

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Page 13
meginreglu falla niður við gildistöku laganna. Með því hins vegar að hér yrði um al- menn lög að ræða yrðu ákvæði þeirra yfírleitt að víkja fyrir yngri lögum. Af þessu er að sjálfsögðu ljóst að eitt helsta markmið frumvarpsins, að tryggja samræmi milli ís- lensks landsréttar'og ákvæða mannréttindasáttmálans, næst ekki út af fyrir sig form- lega til frambúðar með því einu að það verði að lögum fyrst unnt væri að virða þetta markmið að vettugi með setningu yngri laga. Til þess að fyrirbyggja slíka þróun mála þyrfti að veita þessum reglum stöðu stjómskipunarlaga, sem er ekki lagt til með þessu frumvarpi þótt það geti vel verið æskileg þróun mála þegar til lengri tíma er litið. Þrátt fyrir þetta er ekki hægt að gefa sér að yngri lög gætu vikið til hliðar ákvæðum mann- réttindasáttmálans ef þetta frumvarp yrði að lögum. I því sambandi verður að minnast þess að samþykkt þessa frumvarps mundi óhjákvæmilega orka þannig á skýringu nú- gildandi reglna stjómarskrárinnar að yngri lög, sem kynnu að stangast á við ákvæði mannréttindasáttmálans, kynnu um leið að teljast stríða gegn stjórnarskránni eins og hún yrði skýrð í framtíðinni. Þá verður einnig að taka tillit til þess, að skuldbinding ís- lenska ríkisins að þjóðarétti samkvæmt sáttmálanum stæði óhögguð þó að yngri lög kynnu í tilteknu atriði að ganga fyrir ákvæðum laga um gildi mannréttindasáttmálans að íslenskum landsrétti. Gætu því dómstólar með sama hætti og hingað til beitt ákvæðum sáttmálans í úrlausnum sínum til skýringar á yngri lögum.1 Áþekkar hugleiðingar koma fram í greinargerð með frumvarpi til stjómskip- unarlaga sem varð að lögum nr. 97/1995. Þar segir að ákvæði mannréttindasátt- málans njóti ekki stöðu stjómskipunarlaga og því breyti þau í engu mannrétt- indaákvæðum stjórnarskrárinnar. Þá er bent á að í athugasemdum við fmmvarp til laga um Mannréttindasáttmála Evrópu sé lýst þeirri skoðun að lögfestingin hafi allt að einu þau óbeinu áhrif að ríkari tilhneiging verði en áður til að beita rúmri skýringu á stjómarskránni til samræmis við sáttmálann þar sem það gæti átt við, en ákvæði stjómarskrárinnar séu fáorð og komin mjög til ára sinna.2 Úr þessum orðum höfunda frumvarpsins þykir mega lesa viðleitni til að koma í veg fyrir að lögfesting sáttmálans raski viðurkenndum sjónarmiðum um rétthæð réttarheimilda, sjónarmiðum um úrlausn árekstra milli ákvæða al- mennra laga eða lögskýringar almennt. Meðal niðurstaðna í þessari ritgerð er að þetta hafi ekki gengið að öllu leyti eftir í dómum Hæstaréttar. 3. SKÝRING ALMENNRA LAGA OG STJÓRNARSKRÁR TIL SAM- RÆMIS VIÐ ÓLÖGFESTA ÞJÓÐRÉTTARSAMNINGA Áður en raktir verða dómar sem fallið hafa eftir gildistöku laganna um mannréttindasáttmálann þykir rétt að fara nokkrum orðum um beitingu Hæsta- réttar íslands á þeirri reglu að skýra beri lög í samræmi við þjóðréttarskuldbind- ingar. Þetta er mikilvægt baksvið þess sem síðar segir um þau áhrif sem lögin um sáttmálann hafa haft við skýringu ákvæða stjómarskrárinnar. 1 Alþt. A 1992-1993 (þskj. 1160), bls. 5890. 2 Alþt. A 1994-1995 (þskj. 389), bls. 2080. 347
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.