Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 32

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 32
málans. Af þessu verður tæplega dregin önnur ályktun en sú að ákvæði 8. gr. sáttmálans hefði átt að ganga fyrir ákvæðum 1. og 2. mgr. 87. gr. laga um með- ferð opinberra mála ef ósamræmi hefði verið talið vera fyrir hendi. Þar sem lög nr. 62/1994 eru yngri en lög nr. 19/1991, hefði verið unnt að láta hin síðamefndu víkja á grundvelli þeirrar reglu að yngri lög gangi framar eldri lögum ef talið hefði verið að um árekstur hefði verið að ræða. Á hinn bóginn gefur sú stað- reynd, að ákvæði sáttmálans er nefnt samhliða ákvæðum stjómarskrárinnar, til- efni til þess að álykta að mannréttindasáttmálinn og þar með lög nr. 62/1994 hafi þá stöðu að prófa þurfi sérstaklega hvort almenn lög, óháð því hvort þau eru eldri eða yngri en lög nr. 62/1994, samrýmist sáttmálanum. Það er álitamál hvort rétt- mætt sé að orða það svo að stjómskipulegt gildi laga sé prófað með þessum hætti, en beiting ákvæðis sáttmálans við hlið stjórnarskrárákvæðis réttlætir það. Með þessu fær sáttmálinn og lög nr. 62/1994 stöðu sem er, a.m.k. að þessu leyti, hliðstæð mannréttindaákvæðum stjómarskrárinnar. Eins og í H 1995 2172, sem rakinn er að framan, em rök til þess að líta svo á að ákvæðum sáttmálans og þar með laga nr. 62/1994 sé í þessu máli í reynd beitt eins og þau hefðu stjómskipu- lega stöðu þótt um almenn lög sé að ræða að formi til. H 1996 4284 í dómi Hæstaréttar var prófað hvort ákvæði laga um meðferð opinberra mála, sem m.a. heimila takmarkanir á aðgangi ákærðu að framlögðum skjölum sem innihalda skýrslur vitna eða annarra sakborninga fyrir lögreglu, væru samrýmanlegar 3. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans eða 70. gr. stjórnarskrárinnar. I dóminum segir: „Sam- kvæmt 70. gr. stjómarskrárinnar, eins og hún hljóðar eftir breytingu þá sem gerð var með stjórnskipunarlögum nr. 97/1995, skal sá sem ákærður er fyrir refsiverða hátt- semi eiga rétt til réttlátrar málsmeðferðar innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlut- drægum dómstóli, sbr. 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem veitt var lagagildi á Islandi með lögum nr. 62/1994. Hvert aðildarríki sáttmálans fyrir sig get- ur sett lög í samræmi við og til fyllingar ákvæðum 6. gr. hans. Dómur Hæstaréttar 19. apríl 1994 var meðal annars reistur á því að það færi ekki í bága við sjónarmið um jafnræði og réttláta dómsmeðferð, að sakborningur verði yfirheyrður um sakar- efni fyrir óháðum dómstóli áður en hann kynnir sér skjöl málsins, þar á meðal fram- burð annarra ákærðu, enda standi réttmætar og efnislegar ástæður til þess. Ekkert í 1. og 3. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans eða 70. gr. stjórnarskrárinnar breytir þessu eða leiðir til þess að jafnræði aðila sé skert, eða um óréttláta málsmeðferð sé að ræða, þótt ákærða sé ekki heimilað að kynna sér gögn málsins til hlítar fyrr en eftir að hann hefur gefið skýrslu sína fyrir dómi, og áður en mál verður sótt og varið. Verjendur eiga ætíð rétt til þess að kynna sér gögn málsins á hverju stigi þess, og gæta þeir þannig lögvarinna hagsmuna skjólstæðinga sinna“.21 Hér er prófað með hliðstæðum hætti og í H 1996 2553 hvort ákvæði laga um meðferð opinberra mála, sem heimila takmarkanir á aðgangi að framlögð- 21 Sjá einnig sama álitaefni í H 1997 2397. 366
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.