Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Page 54

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Page 54
áratugina en á fyrstu tíu starfsárum sínum frá 1959-1969 kvað dómstóllinn aðeins upp sjö dóma, þótt mannréttindanefndin sem tók til starfa árið 1954 fengi mun fleiri kærumál til úrlausnar á sama tímabili. 3.2 Grunnurinn lagður að inntaki og túlkun 10. gr. MSE Það var ekki fyrr en eftir miðjan áttunda áratug síðustu aldar, meira en tuttugu árum eftir gildistöku Mannréttindasáttmála Evrópu, sem Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp sinn fyrsta dóm sem varðaði 10. gr. MSE. Fór sú þróun auk þess frekar hægt af stað en á níunda og tíunda áratuginum tók fjöldi mála um 10. gr. sáttmálans kipp og hefur dómstóllinn kveðið upp mikinn fjölda dóma sem lúta að margbreytilegum atriðuni um túlkun á inntaki 10. gr. og um tak- markanir tjáningarfrelsis. Frá öndverðu hefur dómstóllinn byggt á því að við mat á takmörkunum á tjáningarfrelsi þurfi að vera uppfyllt þrjú skilyrði sem fólgin eru í 2. mgr. ákvæðisins, en svipuðum aðferðum er beitt við mat á tak- mörkunum réttinda samkvæmt 2. mgr. 8., 9. og 11. gr. MSE sent eru byggðar upp með svipuðum hætti. í fyrsta lagi þarf að hafa verið mælt fyrir um takmark- anirnar í lögum með nægilega skýrum hætti. í öðru lagi verður takmörkun að stefna að einhverju þeirra markmiða sem talin eru í ákvæðinu, þ.e. þjóðar- öryggi, almannaheill, heilsu, siðgæði o.s.frv. Loks verður í þriðja lagi að sýna fram á að takmörkun sé nauðsynleg í lýðrœðisþjóðfélagi, en þetta síðasta skil- yrði er að jafnaði sérstaklega vandasamt úrlausnar þegar tjáningarfrelsið er ann- ars vegar. Beiting meðalhófsreglu í þessu síðasta skilyrði kallar á að andstæðir hagsmunir séu vegnir og metnir og að sýnt sé fram á að ekki sé nægilegt að beita viðurhlutaminni takmörkunum til að ná sama markmiði.27 Nauðsynlegt er að geta stuttlega nokkurra af fyrstu dómum mannréttinda- dómstólsins sem lögðu grunninn að túlkun hans á 10. gr. MSE um nokkur mikilvæg atriði og lutu sérstaklega að sjónarmiðum um skilyrði fyrir takmörk- unum á tjáningarfrelsi samkvæmt 2. mgr. 10. gr. Er enn í dag vísað til þessara dóma í umfjöllun um þær grundvallarreglur sem 10. gr. felur í sér. Þær byggjast m.a. á sjónarmiðum um gildi meðalhófsreglunnar við takmörkun tjáningar- frelsis út frá hagsmunum lýðræðisþjóðfélags og að svokallað svigrúm ríkja til mats varðandi nauðsyn takmarkana á tjáningarfrelsi sé að jafnaði lítið ef um ræðir stjórnmálaumræðu eða umræðu um samfélagslega hagsmuni.28 Fyrsti dómur dómstólsins með stefnumarkandi túlkun á 10. gr. sáttmálans var í máli Handyside gegn Bretlandi árið 1976.29 í þessu máli var tekist á um hvort 27 Jacobs and White: The European Convention on Human Rights, bls. 201. 28 P. van Dijk og G.J.H. van Hoof: Theory and Practice of the European Convention on Human Rights, bls. 88. 29 Dómur MDE frá 7. desember 1976, 48. mgr. í dómi MDE frá 8. júní sama ár í máli Engel o.fl. gegn Hollandi sem fjallaði um agaviðurlög innan hollenska hersins var einnig tekið til skoðunar brot á 10. gr. ásamt nokkrum fleiri ákvæðum, einkum 5. og 6. gr., en ekki talið að brotið hefði verið gegn 10. gr. 388 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.