Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Page 55

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Page 55
réttlæta mætti bann breskra yfirvalda við dreifingu kynfræðslubókar fyrir skóla- böm, með vísan til siðgæðis samkvæmt 2. mgr. 10. gr. Dómurinn leit svo á að ekki væru til staðar í aðildarríkjunum samræmd siðgæðisviðhorf sem hægt væri að líta til í málinu. Við mat á því hvort takmörkun teldist nauðsynleg í lýðræðis- legu þjóðfélagi yrði að játa aðildarríkjum ákveðið svigrúm til mats um hvaða aðgerðir væru nauðsynlegar til að vernda siðgæði. Slíkt svigúm væri þó ekki takmarkalaust og yrði að sýna fram á að takmarkanimar væru viðeigandi og gengju ekki lengra en þörf væri á. Þremur ámm síðar kvað dómstóllinn upp dóm í öðru mikilvægu máli um túlk- un 10. gr. MSE, mál Sunday Times gegn Bretlandi. Þar var deilt um takmarkanir sem lagðar voru við birtingu blaðagreina um umfangsmikil skaðabótamál sem rekin voru á sama tíma fyrir breskum dómstólum vegna lyfjanotkunar barnshaf- andi kvenna sem olli fósturskaða. Var takmörkunin studd við heimild í niður- lagi 2. mgr. 10. gr. til þess að tryggja vald og óhlutdrægni dómstóla, en hætta var talin á að umfjöllunin gæti haft áhrif á afstöðu dómstóla til málsins. í þessu máli útfærði dómstóllinn nánar hvað fælist í kröfu 2. mgr. 10. gr. um að tak- mörkun tjáningarfrelsis þurfi að vera nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Þannig tók hann fram að auk skilyrðisins um að sýna þurfi fram á að takmarkanir séu ekki úr hófi, miðað við þau réttmætu markmið og hagsmuni sem þær stefna að, sé með nauðsyn átt við ríka þjóðfélagslega þörf (pressing social need) og einnig á því byggt að takmarkanir skuli byggðar á viðeigandi og nægilega ríkum ástæðum (relevant and sufficient reasons).30 í málunum Barthold gegn Þýsklandi frá 1985 og Observer og Guardian gegn Bretlandi frá 1991 urðu til mikilvæg fordæmi dómstólsins um hlutverk fjöl- miðla í lýðræðisþjóðfélagi.31 Hefur dómstóllinn síðar ítrekað staðfest að í lýð- ræðisþjóðfélagi gegni fjölmiðlar sérstöku hlutverki sem „varðhundar almenn- ings“ (e. public watchdog) til að miðla áfram upplýsingum og skoðunum á vett- vangi stjórnmálaumræðu og um þjóðfélagslega hagsmuni. I ljósi þessa mikil- væga hlutverks fjölmiðla, að endurvarpa skoðunum í hverju lýðræðisþjóðfé- lagi, hefur dómstóllinn litið svo á að það sé ekki aðeins skylda fjölmiðla að miðla upplýsingum heldur einnig réttur almennings að fá slíkar upplýsingar. Því þurfa sérstaklega ríkar ástæður að liggja til grundvallar því að skerða starf- semi þeirra þannig að slík skerðing geti talist nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi.32 Loks er mikilvægt að fara nokkrum orðum um stefnumarkandi dóma sem 30 Sbr. dóm MDE frá 26. apríl 1979 í máli Sunday Times gegn Bretlandi, 62. mgr. 31 Dómar MDE í málunum Barthold gegn Þýskalandi frá 25. mars 1985 og Observer og Guardian gegn Bretlandi frá 26. nóvember 1991. 32 Björg Thorarensen: „Tjáningarfrelsið og bann við útbreiðslu kynþáttafordóma“. Úlfljótur. 3. tbl. 2002, bls. 436. Sbr. einnig dóm MDE í máli Jersild gegn Danmörku frá 23. september 1994 sem fjallaði um takmarkanir á að senda út fréttaskýringarþátt í sjónvarpi sem fjallaði um kynþátta- hatur. ítarlega umfjöllun um vemd 10. gr. MSE varðandi starfsemi fjölmiðla og blaðamanna og dómaframkvæmd dómstólsins á því sviði má sjá í doktorsriti Herdísar Þorgeirsdóttur: Joumalism Worthy of the Name. 389
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.