Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Síða 75

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Síða 75
óvœgin og harkaleg. Við ákvörðun þess, hvort hann hafi með þeimfarið útjyrir mörk tjáningarfrelsis verður hins vegar fallist á þau rök hans, sem áður getur, og lúta að því að játa verði mönnum rúmu tjáningarfrelsi á því sviði, sem hér um rœðir. Verður einnig fallist á að mörg ummælin hafi falið í sér gildisdóma, þar sem áfrýjandinn hafi lagt mat sitt á staðreyndir, sem hann hafi talið vera fyrir hendi. Hér kemur í fyrsta skipti fram í úrlausn Hæstaréttar tilvísun til greinarmunar sem gera verði á staðreyndum og gildisdómum, með svipuðum hætti og gert hefur verið í framkvæmd mannréttindadómstólsins. Ljóst er að frelsi manna til þess að álykta af staðreyndum og lýsa skoðunum sínum um þær er þannig sér- staklega rúmt. Nýleg framkvæmd íslenskra dómstóla varðandi rýmra tjáningarfrelsi um samfélagsleg málefni og stofnanir samfélagsins virðast samræmast sjónarmið- um sem koma fram um það efni í dómaframkvæmd mannréttindadómstólsins, allt frá dómi hans í Þorgeirsmálinu. Þó er mikilvægt að benda á að mannrétt- indadómstóllinn hefur fallist á að sérstök æruvernd opinberra starfsmanna geti átt rétt á sér, og að ekki sé ávallt rétt að jafna stöðu þeirra við stöðu stjórnmála- manna þegar tekist er á í umræðu um samfélagslega hagsmuni. í nýlegum dómi f máli Pedersen og Baadsgaard gegn Danmörku kom til úrlausnar dómsins hvort sakfelling tveggja þáttagerðarmanna hjá danska ríkissjónvarpinu vegna ummæla sem féllu í garð tiltekins lögreglumanns í sjónvarpsþætti um saka- málarannsókn sem hann stýrði bryti gegn 10. gr. MSE. Að undangengnu mati á því hvort um ræddi staðhæfingar eða gildisdóma og að teknu tilliti til rúms tjáningarfrelsis fjölmiðla sagði dómstóllinn: Finally, the court reiterates that limits of acceptable criticism in respect of civil servants exercising their powers may admittedly in some circumstances be wider than in relation to private individuals. However, it cannot be said that civil servants knowingly lay themselves open to close scrutiny oftheir every word and deed to the extent to which politicians do and should therefore be treated on an equal footing with the latter when it comes to the criticism of their actions. Moreover, civil servants must enjoy public confidence in conditions free of undue perturbation if they are to be successful in performing their tasks and it may therefore prove necess- ary to protect themfrom ojfensive and abusive verbal attacks when on duty. Public prosecutors and superior police officers are civil servants whose task it is to contribute to the proper administration of justice. In this respect they form part of the judicial machinery in the broader sense of this term. It is in the general interest that they, like judicial officers, should enjoy public confidence. It may therefore be ne- cessaryfor the State to protect themfrom accusations that are unfounded.62 Dómstóllinn lítur hér sérstaklega til stöðu lögreglumanna sem hluta af réttar- vörslukerfinu og mikilvægi þess að viðhalda trausti almennings á störfum 62 Dómur MDE í máli Pedersen og Baadsgaard frá 19. júnf 2003, 66. mgr. Sbr. einnig dóm MDE í máli Lesnik gegn Slóvakíu, frá 11. mars 2003. 409
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.