Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1997, Page 5

Ægir - 01.02.1997, Page 5
Loðnufrystingin mestu vonbrigði vetrarins Frysting á loönu fyrir Japansmarkað er ekki svipur hjá sjón á yfirstandandi loðnuvertíð miðað við síðustu ver- tíð. Miklar vonir höfðu verið bundnar við vertíðina nú og miklir fjármunir verið lagðir í aukna frystigetu en enn eina ferðina koma duttlungar loðnunnar á óvart því stórloðnan sem spáð hafði verið í veiðunum, skilaði sér ekki og þar með flokkast loðnan ekki samkvæmt kröfum Japana. Þar í landi eru nægar birgðir til af smærri loðnu, raunar loðnu frá síðustu vetrarvertíð á Islandi. Mikið er nú undir því komið fyrir íslendinga hvernig loðnuvertíðin á komandi sumri verður í Kanada .Skýring á því aö Kanadamenn kunna að veröa örlagavaldar íslendinga í loðnukapphlaupinu nú er sú að ef frystingin gengur heldur ekki þar mun næsta vetur verða mikil eftirspurn frá Japan, bæði á betri og lakari flokkum loðnu. Hertar kröfur Japana fyrir vertíð- ina nú skýrðust af því hversu miklar birgðir voru til í Japan af lakari flokk- unum þannig að viðbúið er að þeir slaki á kröfunum ef birgðir verða upp urnar fyrir vertíðina á íslandi næsta vetur. Samkvæmt upplýsingum Ægis hjá söluaðilum frystrar loðnu vilja Japanar- nir heldur íslensku loðnuna en þá kanadísku, einfaldlega vegna bragðsins. Þó svo að menn sitji eftir með sárt ennið og spyrji hvaöa skýringar séu á að stóra loðnan skilaði sér ekki eins og spáð hafði verið, þá er ljós í myrkrinu að Rússlandsmarkaður er að opnast meira og fáir vita hversu stór markaður er þar fyrir frysta loðnu. Vandamálið er að fá vöruna greidda en að fengnum tryggingum er frysting fyrir Rússland betri kostur en bræðsla og jafnvel betri kostur en frysting í lakari flokka Japansloðnu. Óhcett er aö tala um aö loðnuvertíðin hafi brugðist hvað varðar frystinguna enda miklar væntingar hundnar við framleiðslu fyrir Japansmarkað. Munurinn á vertíðunum í ár og í fyrra er einfaldlega sá að þá gekk allt upp en núna eru flest atriði óhœgstceð. ÆGIR 5

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.