Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1997, Page 11

Ægir - 01.02.1997, Page 11
 Loönunni er dcelt beint úr skipunum upp í þessa hráefnisgeyma og þar blandast hún saman við sjó og ís. Ofan á tumunum er skilja og innan úr frystihúsinu er stjórnað í hvaða geyma loðnan fer en hcegt er líka að dœla beint inn í flokkunarsalinn. „Við vorum búnir að reikna út að hér þyrfti 30 manns á vakt, að með- töldu skiptifólki, en á þessari vertíð munum við verða með fleira fólk. Það gerum við öryggisins vegna á meðan við erum að fullstilla búnaðinn. En að sama skapi mun kerfið og hönnunin öll sanna sig á vertíðinni og kalla þá fram hvað þarf að laga," segir Svan- björn. Þeirri spurningu hvort nýja húsiö eigi eitthvað skylt með því gamla segir Svanbjörn að það sé fátt, annað en að í báðum húsunum sé fryst loðna. „Sjálfvirknin er mun meiri og við gætum einfaldlega ekki komist yfir að frysta 300 tonn á sólarhring í gamla húsinu. Með nýja húsinu erum við að koma okkur inn í 21. öldina í frystingu á sjávarafurðum. Það er umhugsunar- vert hversu langt er síðan frystihús hef- ur verið byggt hér á landi frá grunni en mér virðist hugarfarsbreyting að eiga sér stað núna. Vonandi eigum við eftir að sjá athyglisverða hluti í næstu fram- tíð," segir Svanbjörn. Hús inni í húsi Aðstæöur eru þannig í gamla frystihúsi SVN að erfitt er að uppfylla nútima- kröfur markaðarins og það atriði segir Svanbjörn ýta á eftir flutningi bolfisk- vinnslunnar i nýja húsið. Svanbjörn viðurkennir að með nýja húsinu sé Síldarvinnslan að taka ákveð- Þökkum öllum samstarfsaðilum góða samvinnu við byggingu á nýrri fiskvinnslustöð Starfsfólk Vélaverkstœðis Síldarvinnslunnar hf ÆGIR 1 1

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.