Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1997, Síða 13

Ægir - 01.02.1997, Síða 13
„Uppleggið er að húsið sé sem mest búið sjálfvirkum búnaði. í fyrstu var húsið hugsað út frá loðnu og síld en síðan var bolfiskvinnslan tekin inn. Það er óhætt að segja að þetta sé ein- stakt hús í landinu því ekkert annað hefur jafn mikla möguleika á vinnslu undir einu þaki." Islenskt hugvit - íslensk tækni Þegar horft er yfir búnaðinn í nýja frystihúsinu vekur strax athygli að hann er að lang stærstum hluta kom- inn frá íslenskum fyrirtækjum. íslenskt hugvit hefur því verið virkjað til hins ýtrasta. Jóhannes segist þeirrar skoðun- ar að nú fari í hönd sá tími að íslensk fiskvinnsluhús fái andlitslyftingu og þannig búi menn sig undir nýja öld. í stuttu máli verði frystihúsunum ís- lensku breytt í verksmiðjur, með allri þeirri tæknivæðingu sem fylgi. „Þrátt fyrir að notaðar séu erlendar lausnir í tæknivæddu húsi eins og er áíNeskaupstaö þá eru kerfin hönnuð hér á landi og tækjabúnaðurinn er ís- lensk smíði. íslenska hugvitið liggur því að baki þannig að menn þurfa ekki að óttast það þegar lagt er í breytingar að hér innanlands sé ekki þekking á því nýjasta og besta," segir Jóhannes. Fyrirtœkið Style í Kópavogi hefur þróað þessa nýjugerð af loðnuflokkurum og hefur hún reynst vel. Fjórir slíkir eru hjá Sildarvinnslunni. Fjöldi verktaka Eins og áður er getið kom fjöldi verk- taka að frystihússbyggingu SVN. ístak hf. var aðalverktakinn en meðal stærstu undirverktaka voru verkfræðistofan MEKA hf., Formax hf., Samey hf. og Kælismiðjan Frost. Vélaverkstæði Síldarvinnslunnar sá einnig um stóra verkþætti í bygging- unni og einnig voru fyrirtækin Marel og Þorgeir og Ellert hf. beinir verktakar hjá Síldarvinnslunni en þessir aðilar höfðu á sinni könnu búnað í vinnslu- sal, innvigtunkerfi og pökkunarstöðv- ar. Og hér er horft í átt að plötufrystunum þeim megin sem frosnu afurðimar koma út. Vagn er þeim megin sem tekur við frosnum pönnum og raðar þeim niður á fœriband sem síðar flytur þcer í átt að útsláttarbúnaðinum... ...og hér er vélbúnaðurinn að störfum við útsláttinn. Enginn sviti eða púl, heldur sjálfvirkni sem skiiar öskjunum niður á fœriband sem flyltur þxr áfram að lokafrágangi á bretti og þaðan fer varan inn í frystiklefa. ÆGIR 13.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.