Ægir - 01.02.1997, Qupperneq 31
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA
Upplýsingakerfið Hafdís frá Tæknivali notað víða í sjávarútveginum:
„Fyrirtæki vilja sveigjanlegan hugbúnað
sem þau geta aðlagað sinni vinnslu“
Stjórnendur fyrirtækja eru í vaxandi
mæli að skoða þá leið að samtengja
allan framleiðsluferilinn og nýta
upplýsingar frá ýmsum jaðarbúnaði,
svo sem flokkurum, innvigtunarvog-
um, tékkvogum svo og upplýsingum
úr strikamerkjum og skildum bún-
aði, til að svara þeirri vaxandi kröfu
markaðarins um rekjanleika afurða,
og sönnunarbyrði virkrar gæða-
stefnu.
„Þetta er sú þörf sem við erum að
svara með upplýsingakerfinu Hafdísi og
höfum byggt upp öflugar útfærslur af
þessu kerfi til að svara ólíkum þörfum
viðskiptavinanna," segir Bjarni Hák-
onarson hjá Tæknivali hf.
„Um þær kröfur sem fyrirtæki standa
frammi fyrir í gæðamálum og upptöku
HACCP áhættuþáttagreiningarinnar
má segja að þær eru í rauninni ekkert
annað en gæðabókhald sem má líkja
við það bókhald sem við þekkjum í
daglegum rekstri. Áður fyrr var það
fært í gamlar skruddur, en nú á dögum
dettur engum í hug að færa bókhald á
annan hátt en tölvutækan. Eins er það
með gæðaeftirlitið. Nákvæmlega eins
og bókhaldið er lykillinn í fyrirtækjum
hvað fjárhaginn varðar þá er gæðabók-
haldið lykillinn hvað gæðin varðar, allt
eru þetta lykiltölur varðandi rekstur-
inn, og sjá stjórnendur sífellt meiri þörf
fyrir aðgengi að þessum upplýsingum,"
segir Bjarni og bætir við að mikið sé að
gerast í þessum málum um borð í
vinnsluskipunum. „Þar er tölvuvæðing
frekar stutt á veg komin þegar horft er
til vinnslu, afurðaskráningar og gæða-
mála. Sú útfærsla Hafdísar sem aðlög-
uð hefur verið vinnsluskipum nefnist
Togara-Hafdís, og í fáum orðum er
virknin sú að skipstjóri skráir áhöfn og
Bjarni Hákonarson, markaösstjóri sjávar-
útvegslausna Tæknivals.
stöðu hvers og eins þegar haldið er til
veiða. Síðan við upphaf veiða er Tog-
ara-Hafdís stillt á það veiðisvæði sem
skipið er á hverju sinni, og svo byrja
afurðirnar að renna ofan í lest þegar
vinnslan er komin í gang. Afurðirnar
eru strikamerktar og í strikamerkinu er
auk afurðanúmers, halnúmer og tíma-
merking þannig að uppi í brú getur
skipstjóri fylgst jafnóðum með upp-
lýsingum um samsetningu afurðanna
og verðmæti, ásamt hlutaútreikningi.
Tengingar viö vogir m.t.t. undir- eða
yfirvigtar ásamt nýtingarprufum og
gæðaskýrslum færast inn í kerfið og
þessar upplýsingar tengjast beint afurð-
inni. Kerfið færir stjórnendum þessar
upplýsingar og hægt er að láta útprent-
anir um vigtanir og gæðamál afurðar-
innar fylgja til kaupanda, eða skoða
þessar upplýsingar aftur í tímann varð-
andi t.d afurðakvartanir og skoðanir.
Öryggi skráninganna er mjög mikið
þar sem um sjálfvirkan aflestur afurða
er að ræða. Togara-Hafdís býður einnig
þann möguleika að skipa upp með
handtölvu þ.e.a.s. aö afurðir eru taldar
á hverri pallettu sem upp úr skipinu
kemur, „skotið" er á strikamerki afurð-
anna og skráður fjöldi hverrar pakkn-
ingar, svo og einkenni gáms, eða geym-
slu sem afurðir eiga að skrást í," segir
Bjarni.
Öflugt eftirlit um borð í fiskvinnslu-
skipunum er nauðsynlegt enda bendir
Bjarni á að kröfurnar sem skipin þurfa
að undirgangast séu ekki mjög frá-
brugðnar því sem gerist hjá fiskvinnsl-
unni í landi. „Það eru allir að skrá eitt-
hvað niður á pappír í dag en vandinn
er sá að pappírinn fer í möppur og mik-
il vinna felst í því að nota þessar upp-
lýsingar til stjórnunar.
Eins og áður segir hefur Tæknival
þróað mismunandi útfærslur af Hafdísi
til að mæta sérhæfðum kröfum fyrir-
tækja og skipa. Tæknival hf., sem er
eitt stærsta tölvufyrirtæki landsins,
hefur selt sjávarútvegshugbúnað í rúm
10 ár en eldri kerfi fyrirtækisins eru
víða í notkun. Nú er verið að bjóða
notendum að uppfæra eldri kerfin yfir í
nýju kynslóðina, Hafdísi, sem Bjarni
segir að byggi á þeim grunni sem eldri
kerfin og notendur þeirra hafi lagt, og í
dag eru yfir 20 fyrirtæki víðs vegar um
landið og miðin sem keyra Hafdísi,
ásamt því sem Fiskvinnsluskólinn í
Hafnarfirði er með Hafdísi uppsetta hjá
sér og beitir henni við kennslu.
Meðal annarra notenda má nefna
Bakka hf., Fiskiðjusamlag Húsavíkur
hf., Básafell hf., KEA Dalvík og Hrísey.,
Snæfelling hf., Hólmadrang hf., Ljósa-
vík hf., og fleiri.
ægir 31