Ægir - 01.02.1997, Page 38
ar, þrír eins manns klefar og aftast einn
tveggja manna klefi (nú geymsla).
Stjórnborbsmegin aftan við íbúðagang
er ókæld matvælageymsla, vélareisn og
verkstæði, þvottaherbergi með einum
salernisklefa og tveimur sturtuklefum
(ásamt þvottavél og þurrkara) og aftast
einn tveggja manna klefi.
Efra þilfar: í þilfarshúsi á efra þilfari
eru fremst tveir eins manns klefar með
sérsnyrtingum, annar skipstjóraklefi og
hinn merktur sem sjúkraklefi, en aftast
bakborðsmegin er salernisklefi og klefi
yfirvélstjóra.
Ibúðir eru einangraðar með ull og
klæddar er meb plasthúðuðum plötum.
í eldhúsi og borðsal eru kæliskápar fyrir
matvæli og frystikistur, annars vegar í
íbúðagangi á efra þilfari og fram í hval-
bak.
Vinnuþilfar (milliþilfarsrými)
Milliþilfarsrýmið framan við íbúðir er
með sjókæligeymum upp að efra þilfari
fyrir miðju og að bakborðssíðu fyrir lest
1 og lest 3. í stjórnborðssíðu er gangur
og einnig þvergangur milli lestar 1 og
lestar 2 og langskipsgangur í bakborðs-
síðu til hliöar við lest 2. Framan við
milliþilfarslestarýmið er snurpivindu-
rými.
í miðgangi milli iestar 1 og 2 er
vakúmkút komið fyrir með tilheyrandi
lögn og stútum að sérhverjum sjókæli-
geymi. í stjórnborðsgangi liggur þrýsti-
og soglögn ab og frá einstökum sjókæli-
geymum með tilheyrandi lokubúnaði.
Loft milliþilfarsrýmis er einangrað og
klætt.
Fiskilestar (sjókæligeymar)
Almennt: Lestarými undir neðra þilfari er
skipt í þrjú megin lestarými og er hverju
rými skipt með langskipsþilum úr stáli í
þrjú hólf þannig aö samtals eru níu
geymar í skipinu. Geymar þessir fram-
lengjast upp að efra þilfari í sjálfu milli-
þilfarsrýminu, en þab rými er mjórra og
styttra. Milliþilfarsgeymarýmið tengist
neðra rýminu án þilfars. Allir geymarnir
eru útbúnir sem sjókæligeymar.
Frágangur, búnaður: Lestar eru ein-
angraðar með polyurethan og klæddar
meb stálplötum. Geymarnir eru útbúnir
með svonefndt RSW-kerfi (Refrigerated
Sea Water) og er kældum sjó hringrásað
um einstaka geyma um lagnir sem liggja
að kælikerfi, staðsett í sérstökum rým-
um framan við lestarýmið.
Á efra þilfari eru þrír lúgukarmar,
einn að hverju lestarými, með þremur
lúgulokum úr áli á hverjum karmi. Ein-
stök lúgulok eru búin smálúgum.
Vindubúnaður, losunarbúnaður
Almennt: Vindu- og losunarbúnaður er
vökvaknúinn og er aðalvindubúnaður
frá A/S Hydraulik Brattvaag (lág-
þrýstiknúinn), kraftblökk frá Peterel,
milliblökk frá Brunnum og færslublakk-
arbúnaður frá P. Bjorshol Mek. Verksted,
viðbótarvindubúnaður frá Shore
Hydraulics Ltd (háþrýstiknúinn), fiski-
dælur frá Rapp Hydema og vakúmlos-
unardælubúnaður frá MMC. Þá er skipið
búið losunarkrana frá ACB Hydraulics
Ltd.
Togvinciur: Framarlega á efra þilfari,
aftan við hvalbak, eru tvær togvindur
(splittvindur) af gerð DM 630020 frá
Brattvaag, hvor búin einni tromlu og
knúin af einum beintengdum vökva-
þrýstimótor.
Sambyggð snurpivinda: Á neðra þilfari,
framantil bakborðsmegin í milliþilfars-
rými, er snurpivinda af gerð Rogne frá
Brattvaag, búin tveimur tromlum (sam-
síða liggjandi) og knúin af tveimur
tveggja hraða vökvaþrýstimótorum um
gír (1:1.98).
Snurpivinda: Á efra þilfari, b.b. megin
framan vib yfirbyggingu, er snurpivinda
frá Shore Hydraulics Ltd, búin einni
tromlu og knúin af einum beintengdum
Hagglunds 64-16300, 16.3 1/sn, vökva-
þrýstimótor. Tromlumál vindu eru 334
mmo x 1300 mmo x 1400 mm og tekur
tromla um 1500 m af 28 mmo vír, togá-
tak vindu á tóma tromlu er 25 tonn.
Brjóstlínuvinda: Á efra þilfari framan
við yfirbyggingu er brjóstlínuvinda frá
Brattvaag af gerð DSM 2202, búin einni
tromlu og knúin af einum M 2202
vökvaþrýstimótor. Tromlumál vindu eru
380 mmo x 800 mmo x 400 mm. Tog-
átak vindu á tóma tromlu er 6 tonn og
tilsvarandi dráttarhraði 67 m/mín.
Flotvörpuvinda: Bakborðsmegin á efra
Togvinda - tæknilegar stærðir (hvor vinda);
Tromlumál 324 mmo x 1500 mmo x 1450 mm
Víramagn á tromlu 2900 m af 26 mmo vír
Togátak á miðja (850 mmo) tromlu 8.0 tonn
Dráttarhrabi á miðja (850 mmo) tromlu 76 m/mín
Vökvaþrýstimótor Brattvaag M 6300
Afköst mótors 136 hö
Þrýstingur 40 kp/cm2
Olíustreymi 2005 1/min
Snurpuvinda - tæknilegar stærðir
Tromlumál 241 mmo x 1000 mmo x 1100 mm
Víramagn á tromlu 1200 m af 24 mmo vír
Togátak á miðja (600 mmo) tromlu 2 x 13.0 tonn (lægra þrep)
Dráttarhraði á miðja (600 mmo) tromlu 40 m/mín (lægra þrep)
Vökvaþrýstimótorar 2 x Brattvaag M 4185
Afköst mótor 2 x120 hö
Þrýstingur 35 kp/cm2
Olíustreymi 2 x 2005 1/mín
38 ÆGIR